|
|
og ég er 7 ára
|
|
um mig:
Ég fæddist þann 28 desember 2002 á Sjúkrahúsinu á Akranesi og gekk fæðingin alveg rosalega vel. Ég var 15.5 merkur og 51.5 cm. Foreldrar mínir eru Berglind Júlía Valdimarsdóttir og er hún frá Akranesi og Bjarni Jóhann Guðmundsson en hann er frá Reykjavík, við fjölskyldan búum i Grafarvogi
|
|
|
|
Annað:
STEINGEITIN
22. desember - 19. janúar Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Val" sem merkir afbragð, - úrval, - kosning, - vopnbitinn, - stjórna og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís. Valdís er heilladís látinna.
Ef þú vilt senda mér póst ýta hérð>
|
| Þú ert gestur nr. 45487 |