|
| Velkomin á heimasíðuna okkar, við erum Rúnar Gauti og Jenna Gunnarsbörn |
|
|
Um mig:
Ég er ákveðinn, lítill kraftakarl sem dreif mig í heiminn 6 vikum fyrir tímann eða þann 28. desember 2002 kl. 02.15. Nú er ég bara árinu eldri en á samt afmæli svolítið seint. Ég var 2500 gr (10 merkur) og 48 cm þegar ég fæddist, en ég var svo blóðlítill og með veik lungu svo ég var settur í hitakassa og öndunarvél í nokkra daga. Það var svo þann 1.janúar 2003 sem mamma og pabbi fengu að halda á mér í fyrsta skipti. Ég var með mikið ljóst hár og gráblá augu þegar ég kom í heiminn.
Litla systir mín kom í heiminn þann 3.febrúar 2009, kl. 06.21 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Hún var 3242 gr (13 merkur) og 50 cm þegar hún fæddist. Hárið var kolsvart og mikið og húðin dökk og falleg! Mamma okkar heitir Betsý Ágústsdóttir ('81) og pabbi okkar heitir Gunnar Friðfinnsson ('75), þau eru bæði Vestmannaeyingar. Endilega skrifið í gestabókina svo við getum séð hverjir heimsækja okkur! Sjáumst!
|
|
|
Annað:
ELSKU MAMMA OG PABBI...
Ég er með svo litlar hendur, ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir, farðu hægar svo ég geti fylgt þér. Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt, ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig, þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar, ekki vera alltaf að skamma mig. Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna.
María Björg frænka Gunnar Ingi Tryggvason Aðalheiður Kristín Karl Jóhann Örlygsson Kristbjörg Unnur Friðbergsdóttir Ester Grétarsdóttir Tómas Arnar Gíslason Mikael og Eva Arnar og Andri Arnar Gauti,Reynir Þór og Birna Dögg Óðinn Freyr Óðinsson Bergur Andri og Hávarður Arnar Ísabella Ýr og Ísak Huginn Sigurður Freyr og Guðrún Katla Rebekka Rut Rúnarsdóttir Endilega skrifið í gestabókina mína!
Heimsóknir á síðuna síðan september 2002: |
| Þú ert gestur nr. 104745 |