Við RG vorum að ræða ýmis mál eitt kvöld í mars ´08, og þá fór hann að segja mér að sumir á leikskólanum væru bara alltaf að meiða aðra krakka. Honum var mikið niðri fyrir og sagði svo : Mamma, maður á bara að vera góður við aðra krakka og sýna þeim virðingu og vinsemd!!!!
Á þessum tíma var búið að tala mikið um orðin virðing og vinsemd á Sóla og auðvitað tekur RG vel eftri og tileinkar sér þessi orð!
Rúnar Gauti var á kafi að púsla púsl með líkamanum, fyrst beinagrindina og svo æðakerfið, vöðvana og svo framvegis, þá heyrist allt í einu í honum, "Hvað gerist eiginlega þegar beinagrind borðar súpu??"
Svo hélt hann áfram og púslaði líffærunum og þá spurði hann "Hvað er þetta" og benti á lifrina. Og spurði svo "Er það það sem við lifum á???"
sept. ´07
Ég spurði Rúnar Gauta af hverju himininn væri blár, svaraði hann um hæl "Af því að Guð málaði hann bláan!!"
maí ´06
Eitt sinn vorum við að koma frá Sóla og RG situr útí bíl horfir á Heimaklett sem var smá þoka/ský á, og spyr svo "Mamma afhverju eru skýin að kkknnnnnúúúúsa Heimaklett??"maí ´06
Rúnar Gauti var mikið að spá í því um daginn hvernig afi Friffi gæti átt Eyjabúð... ég sagði honum að hún hefið verið til sölu einu sinni og afi því keypt hana. Þá horfði hann á mig í dágóðan tíma og sagði svo "Hvernig gat hann haldið á henni????"
(Eina sem hann tengir er að maður fer og kaupir eitthvað og heldur á því heim!)
Rúnar Gauti var búin að pissa og fylgdist svo grant með pabba sínum pissa, benti svo á punginn á sér og spurði; "pabbi er þetta líka tippið mitt??" Nei þetta er pungurinn þinn. Þá svaraði Rúnar Gauti, "vá hvað þú ert með stóran pung og stórt typpi!" Seinna þennan dag kom RG til mín alveg svo einlægur "Mamma, þegar ég er búin með Kókópuffsið þá fæ ég skegg...." Já sagði ég og skildi ekki alveg... þá bætt hann við, "og stóran pung og stórt typpi!!"
Þarna sjáum við hvernig þau tengja þetta saman, ef þú ert duglegur að borða þá verður þú stór eins og pabbi!!!
Lok sept. ´05
Það eru sum orð sem Rúnar Gauti nær ekki alveg að segja rétt, og í gær þegar ég ætlaði að fá hann til að borða meiri hamborgara og djús sagði hann hátt og skýrt, "Nei takk mamma, ég er saddur með súpið og abborakkann"
16.08.2005
Í gær kúkaði RG loksins eftir langa bið og var ég að hrósa honum einhver ósköp og sagði að nú væri kúkurinn svo glaður að vera kominn útí sjó til HINNA kúkana. Þá brá litla manninum mikið og kallaði á eftir mér auðvitað með kökkinn í hálsinum, "mamma hann fór ekki til HIMNA að lúlla, bara útí sjó"!! Svona misskilur hann ýmsa hluti!
15.08.2005
Við fórum í bíltúr daginn eftir að við höfðum verið í Jólahúsinu á Akureyri, svo keyrðum við inná Mývatn og mamman fór að segja Rúnar Gauta að nú værum við komin í Mývatnssveit. Hann velti þessu orði mikið fyrir sér og sagði svo með kökkinn í hálsinum, "Mamma ekki Mývatssveinn bara Jólasveinn!!!" Þá misskildi hann orðið svona heiftarlega!!