Síðasta færsla var 28.október...... Jæja.... Nóg að gera hjá okkur og greinilega ekki mikill tími til að skrifa hér inn. En það er allt gott að frétta af okkur, Rúnar Gauti orðin 8 ára og Jenna 2ja ára svo tíminn flýgur hratt. Rúnari gengur rosa vel í skólanum og íþróttunum og er á leið á sitt fyrsta fimleikamót núna í febrúar. Jennu gengur líka mjög vel á Sóla, er orðin altalandi og mjög skemmtilegur krakki. Í dag fórum við út í snjóinn að bruna á Stakkó og labba um á snjóþotunni. Mútta var að setja inn fullt af nýjum myndum í Janúar og febrúar albúmin svo endilega kíkið ;o)
Munið eftir gestabókinni góðu!!
kv. RGG og JG.
Nýjar myndir í albúmi ;o)
Jæja þá er múttan búin að setja inn nýjar myndir og stefnir á að setja meira inn í dag eða kvöld. Nóg er til og margt búið að gerast hjá okkur undanfarið :o) Jenna er alsæl á Sóla, kyssir mann bless og labbar alsæl inná deild á hverjum morgni og hleypur svo alsæl til manns þegar maður sækir hana á daginn, bara draumur. Nú er múttan að fara að vinna minna, til hálf tvö svo þá höfum við meiri tíma saman og auðvitað Rúnar Gauti líka. Það gengur voða vel í skólanum hjá honum, hann er farin að fá kennslu í 4. og 5.bekkjar stærðfræði einu sinni í viku með öðrum strák úr 3.bekk, svo er hann á fullu í fimleikum og handbolta.
En þið kíkið á myndirnar og munið eftir gestabókinni ;o)
kv. Krúttin
Jæja þá, hér erum við ;o)
Hvernig væri að skrifa eitthvað hér inn?? Nú er aðalgæjinn byrjaður í þriðja bekk og litla prinsessan byrjuð á leikskóla! Allt að gerast. Jenna bryjaði hjá Láru dagmömmu 23. ágúst sl. og gekk mjög vel að aðlaga hana þar, þrátt fyrir að hún hafi reynt að kreysta fram grátur þegar við komum þá var allt í góðu um leið og hún alsæl. Nú er hún í aðlögun á Sóla og er hún búin að mæta í tvo daga. Hún var alsæl í gær og dag svo við vonum bara að það verði áfram! Bara krúttleg ;o) Rúnar Gauti er líka ánægður að vera byrjaður í skólanum aftur, byrjaður að læra ensku og allt, og finnst ennþá allt saman voða skemmtilegt í skólanum. Hann er svo á fimleikaæfingum og byrjar í handboltanum í næstu viku, svo það er nóg að gera.
Um helgina er árgangsmót hjá mömmunni svo börnin flytja til ömmu og afa á meðan, voða notó.
Þangað til næst, bæjó
kv. RGG og JG
Góða kvöldið,
þá er múttan búin að setja inn Júní albúm efst á síðuna, svo endilega kíkið á það. Í dag er prinsinn 7 og hálfs árs, og skvísan er alveg að verða 17 mánaða, úff hvað tíminn líður skuggalega hratt!! Jenna er komin með leikskólapláss frá og með 15. september, sem er frábært, en við byrjum auðvitað bæði að vinna eftir sumarfrí 23.ágúst svo hún fer til Láru dagmömmu í mánuð áður en hún byrjar á Sóla! Smá brölt en vonandi tekur hún vel í það að hitta alla krakkana. Hún er allavega yfirsig hrifin af krökkum núna, en við sjáum til hvernig þetta verður ;o) Þá fer RG auðvitað aftur í skólann og þá tekur við þriðji bekkur!!!
En nóg af tali um framtíðina! Þeir feðgar eru nú alltaf heima saman að passa skvísuna, Rúnar Gauti fer á golfæfingar eftir hádegi og líkar það mjög vel, er búin að koma einu sinni heim með bikar eftir að hafa unnið chipp keppni, og stefnir sko á fleiri bikara í sumar! Hann fór lika á leikjanámsskeið í tvær vikur nú í júní, fyrir hádegi, en fannst svo bara frekar ósanngjarnt að þurfa vakna svona snemma í sumarfríinu sínu og fara á æfingu.... Svo við tókum pásu á því þar sem pabbi hans er hvort eð er heima og þeir dunda sér saman. Ásta Björt frænka er farin að koma alla morgna og taka Jennu í smá göngutúr, og út að leika og eru báðar sáttar við það.
Svo fer mamman á heimilinu að detta í sumarfrí þann 16 júlí og verður það voða gott!! Við byrjum fríið á að fara til Rvk í brúðkaup hjá Guðbjörgu og Sigga, og svo er annað óráðið. Við ætlum að sigla til baka úr Bakkafjöru og fara á Þjóðhátíð. Annað er ekki planað!!
Vonandi hafið þið það gott í sumar, við hendum inn fleiri myndum við tækifæri ;o)
Munið eftir gestabókinni ;o)
kv. RGG og JG.
Góða kvöldið!
Við erum hér enn.... bara svolítið lítið að sinna síðunni! En mamma var að setja inn myndir og myndbönd í Maí albúmið ;o) Annars er allt gott að frétta af okkur, allir hressir og kátir, Jenna farin að labba, búin að fá einn jaxl og er alltaf jafn glöð og góð. Nær í fjarstýringuna oft á dag, sest í sófann og kallar á krakkana..... þá vill hún horfa á Söngvaborg ;o) Orðin eru að koma eitt og eitt, en henni finnst líka bara gott að segja haaaaa?, voááááá, namm namm, ahm, og ðakk... sem sagt er hissa/ánægð, eitthvað er gott, ahm er Já, og ðakk eitthvað sem er vont eða ojbjakk. Svo segir hún líka gamm gamm gamm... og er með því að skamma sjálfan sig þegar hún veit að hún er að gera eitthvað sem má ekki!!! Svo er það mamma og pabbi og únah, sem er Rúnar, kagggga!! er krakkar og svo kemur hitt bara seinna!
Nú er skólinn að klárast í næstu viku hjá Rúnari Gauta og sumarið framundan. Honum hefur gengið mjög vel í skólanum í vetur, var að taka einhverskonar stöðupróf í stærðfræði og getur mjög mikið ;o) Hann mældist þannig að hann er með námsefni 3ja bekkjar á hreinu, talsvert í fjórða og eitthvað í fimmta, sjötta og sjöunda¨!! En ekkert mikið þó. Svo hugmyndin er að í þriðja bekk taki hann námsefni fjórða bekkjar í stærðfræði, sem er bara frábært ;o) Annars er hann ánægður með allt, finnst allir voða skemmtilegir og allt voða skemmtilegt!
En nú skoðið bara nýju myndirnar og njótið vel ;o)
kv. RGG og JG.
Laugardagurinn 27.feb.
Góðan dag,
nú er mamman á heimilinu byrjuð að vinna, byrjaði 15. feb, og gengur allt saman mjög vel. Gunnar er heima með Jennu og hafa þau það voða gott saman, allt að komast í rútínu og allir glaðir. Reynar er mömmunni fagnað vel af Jennu þegar hún kemur heim á daginn og er það bara gott ;o)
Eftir 2 vikur förum við systkinin svo í pössun til ömmu Jennu og afa Ágústs því mamma og pabbi eru aðfara til London eina helgi. Það verður ekkert annað en dekur þar ;o)
Mamma var að setja inn nokkrar nýjar myndir í febrúar albúmið.
kv. RGG og JG
Miðvikudagurinn 3. febrúar 2010
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag hún á afmæli hún Jenna hún á afmæli í dag!!!! Veiiiiiii!!!!!!
Já hvað haldiði, það er ár síðan litla krúttið kom í heiminn, alveg ótrúlegt! Nú er hún bara orðin eins árs og braggast voða vel. Dagurinn byrjaði á að fá pakka frá mömmu og pabba, ömmu Kiddý og Brynju og co. Hún fékk dúkkukerru frá m&p, Hummelgalla frá ömmu Kiddý og sundbol og sokka frá Brynju og co. Ekkert smá flott allt. Svo var það bara morgunmatur og pelinn á eftir og svo klukkutíma lúr með múttu túttu ;o) Mamma er að nota síðustu dagana sem hún á til að kúra með mér, hún byrjar að vinna 15. febrúar. Annars ætlum við bara að hafa það gott í dag, og halda svo uppá afmælið hennar á laugardaginn kl. 3, fyrir þá sem vilja koma í kaffi ;o)+
Bless í bili, kv. JENNA AFMÆLISKRÚTT!!!
Mánudagurinn 18.jan
Úff hvað tíminn líður, ég skrifaði síðast 29. des og fannst það vera í gær!! En manni leiðist ekki á meðan, það sem af er árinu erum við búin að hafa það mjög gott. Allt komið á fullt aftur, skóli, æfingar og vinna og styttist í að mamman fari að vinna og pabbinn í orlof!
Brynja og co komu til okkar á Þrettándanum og var það mikið fjör, við fórum í gönguna og á Völlinn og voru systurnar mishrifnar af þessu en allir ánægðir. Þau fóru svo heim á sunnudeginum. Foreldrarnir tóku sig til og pöntuðu sér ferð til London í mars, svona afmælisferð þar sem múttan verður í síðasta skiptið "tuttugu og eitthvað" og pabbinn verður 35 ára. Við krakkarnir fáum að vera í góðu yfirlæti hjá ömmu og afa í rvk á meðan.
Sl. helgi var svo mjög róleg og góð, byrjaði á afmæli hjá Kristbjörgu krúttu á föstudaginn, svo kom Snorri að leika við Rúnar Gauta á laugardagsmorguninn og við fórum öll saman í sund og nammibíltúr, voða gaman. Svo var aftur afmæli í gær hjá bekkjarfélaga RG svo við gömlu skelltum okkur í göngu á meðan, ekki svo oft sem það gerist!!!
En nú er stefnan tekin á borgina á miðvikudaginn, Rúnar Gauti ætlar að fara að fjárfesta í skrifborði og hillum svo þetta er merkisferð! Við ætlum líka að hitta Inga frænda sem er að koma til landsins í dag, jibbý!!
Það eru komnar inn nýjar myndir síðan á jólunum og eru fleiri væntanlegar í dag eða á morgun.
kv. RG og JGG
Þriðjudagurinn 29.des.
Þá er stóri strákurinn bara orðin 7 ára! Tíminn líður sko hratt, finnst hann hafa fæðst í gær! Afmælið var haldið í gær á afmælisdaginn og komu 15 krakkar í partýið. Það var mikið fjör, bíómynd, bingó og leikið sér. Börnin borðuðu mjög vel, kláruðust 5 pizzur, rískaka, ca 50 muffins og ein súkkulaðikaka.... Jebb það fór engin svangur heim með stjörnuljósin sem RG gaf öllum við brottför. Þetta var bara skemmtilegur dagur og Rúnar Gauti alsæll, enda moldríkur núna... hann vildi semsagt pening í afmælisgjöf og fékk hann samtals ....... 32.000 krónur. Sem er bara rugl! Reyndar gáfum við honum 10.000 kr og amma og afi í Rvk. 6000 kr og svo aðrir afmælisgestir rest. Svo fékk hann líka leir, galdradót, galdra-DVD, Bionicle karl, bækur, lego, og púsl. Hann ætlar svo að fara og kaupa sér skrifborð fyrir peninginn sem hann fékk, það á að endurgera herbergið hans eftir áramót, hann er orðin svo fullorðin!!
Svo eru jólin auðvitað nýbúin líka og það var yndislegt. Við vorum hér heima við fjölskyldan í rólegheitum og borðuðum okkar hangikjöt og Royal búðing!! Jenna var lasin svo það var ágætt að við ætluðum að vera heima. Þau fengu fullt af pökkum, bæði föt og dót sem hitti allt í mark. RG las á alla pakkana og var svo ánægður með allt sem hann fékk. Við þökkum kærlega fyrir þau. En Jenna fékk semsagt hita og hor 22. des og á jóladag fórum við til læknis og þá var hún með eyrnabólgu líka. Hún fékk sýklalyf sem hún tók í 2 daga en fékk svo ofnæmi af þeim. Hún var látin hætta á þeim en fékk ekki önnur í staðin, það á bara að sjá til hvernig hún verður.
Við látum þetta duga í bili, setjum inn myndir fljótlega, nóg var tekið af þeim!!
kv. Betsý og co
8.desember
Jæja betra er seint en aldrei!!! Nú eru komnar inn skrilljón myndir í des albúmið, þó svo að flestar séu þær frá því í nóvember, en það skiptir engu!!
En nú eru bara jólin á næsta leyti, og ég og börnin á leið í borgina á fimmtudaginn aðeins að kíkja á jólastemmninguna þar.
Endilega kíkið á myndirnar og munið eftir gestabókinni ;o)
kv. Allir!