| Velkomin á heimasíðuna okkar. Við heitum Þórhildur Nilam,Freydís Malin og Sæmundur Sesar. |
Það þarf lykilorð til að komast lengra. Sendið mömmu línu og hún sendir ykkur lykilorðið að vörmu spori.
|
|
Um mig:
Ég heiti Þórhildur Nilam.Ég fæddist í kolkata á Indlandi þann 15 janúar 2002.Ég var oggulítil mús,bara 1300.gr,ég var með mikið svart hár og stór brún yndisleg augu.Ég bjó á barnaheimili sem heitir Matri Sneha sem þýðir Móðurást fyrstu 13.mánuði lífs míns.Ég er fyrsta barn foreldra minna. Litla systir heitir Freydís Malin og hún fæddist 18 júlí´03 á heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Hún var 17 merkur og 56 cm. Stór stelpa, með dökkbrúnt hár og yndisleg blá augu.Litli bróðir hann Sæmundur Sesar fæddist 28 des´05 á heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Hann var 17 merkur og 55 cm. Stór og fallegur prins með dökkt hár og dökk augu. Mömmu og pabba finnast við fallegust,bestu og skemmtilegustu börn sem hægt er að hugsa sér. Við erum óskabörnin þeirra. Við fluttum til Svíþjóðar í lok okt´07.Við búum núna í smálöndunum eins og Emil í Kattholti og líkar það vel.
Um langan veg er farið í lítið barn að ná blessað barnið blíða er á leið til þín hérna mun þess bíða heitur faðmur þinn. höf Gulla. ORÐ UM BÖRN. Mikið geta ljós heimsins fæðst lítil verið þó ljós heimsins um leið. |
|
|
|
Annað:
Pabbi okkar heitir Kristján Sæmundsson og Mamma heitir Gunnhildur L Þorvarðardóttir. Við erum óskabörn mömmu og pabba.Þeim finnst við heimsins fallegastu börn. Þórhildur Nilam fæddist í kolkata á Indlandi. Pabbi hennar og Grímur frændi fóru og sóttu hana á barnaheimilið þann 11.febrúar'03.Þau komu svo heim til mömmu aðfaranótt 15 feb'03,þá var mamma sko glöð að sjá og fá að knúsa gullmolann sinn loksins. Litla systir ( Freydís Malin) fæddist svo þann 18 júlí'03. Yndislega falleg og fín.Núna er húsið fullt af lífi og fjöri. Lífið er yndislegt................... og ennþá bætist í barnahópinn okkar fallega því þann 28 des´05 fæddist okkur litill sonur sem hefur fengið nafnið Sæmundur Sesar.
Við njótum þess að vera saman, Lífið er fullkomið alt="Click for Kolkata (Calcutta), India Forecast" height=60 width=468>
nafnið mitt þýðir... Þórhildur: Nafn þetta er samsett af forliðnum "Þór" í merkingunni þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði, og viðliðnum "hildur" sem merkir bardagi, - orrusta, - valkyrja. og Nilam þýðir safír og líka blámi. Nafn litlu systur... Freydís: Nafn þetta samsett af forliðnum "Freyr" sem kemur úr norrænni goðafræði og kemur af frumnorræna orðinu "frauja" sem merkir hinn fremsti, - herra og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís og Malín..Nafn þetta er hliðarmynd nafnsinsMagdalena. Barnið mitt Ég horfi í undrun á heiminn og þig, á hönd þína og fagra kinn. Þú komst til mín, barn mitt, á kyrrlátri stund og ég kyssti þig, vinur minn. Og andlit þitt var eins og viðkvæmt blóm sem vex upp í himininn. Það var eins og Guð hefði vitjað mín. Ég veit ekki hvað það er. En ekkert í heiminum öllum er til sem ann ég meira en þér. Þig aldrei ég undir brjóstum bar en ég ber þig í hjarta mér. (höf. ók) fallegt ljóð ...... Arfur ættleidds barns Einu sinni voru tvær konur sem aldrei þekktu hvor aðra. Annarri manstu ekki eftir en hina kallarðu móður. Tvær ólíkar manneskjur sem þig ólu. Önnur þitt leiðarljós en hin á við sólu. Sú fyrri gaf þér líf, sú seinni kenndi þér að lifa því. Sú fyrri vakti hjá þér þörf fyrir ást, sú seinni gaf þér hana. Önnur gaf þér þjóðerni, hin gaf þér nafn. Önnur gaf þér hæfileika, hin leiddi þig á réttar brautir. Önnur gaf þér tilfinningar, hin huggaði þig. Önnur sá þitt fyrsta bros en hin þerraði tárin þín. Önnur fann þér betra heimili en hún gat boðið þér. Hin óskaði sér barns og varð að ósk sinni. Og nú spyrð þú mig í gegnum tárin aldagamallar spurningar, ósvaraðri gegnum árin. Erfðir eða umhverfi, hvort hefur mótað þig? Hvorugt elskan mín. Hvorugt. Aðeins tvennskonar ást.
ELSKU MAMMA OG PABBI Ég er með svo litlar hendur, ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir, farðu hægar svo ég geti fylgt þér. Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt, ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig, þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar, ekki vera alltaf að skamma mig. Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna. LITLU HENDURNAR MÍNAR Litlu hendurnar mínar langar að gera svo margt, þegar ég læri og leik mér og lifi frá degi til dags, við að klæða mig, klippa og föndra og kætast til sólarlags. Fingraförin mín set ég á flesta staði hér, þau tákna ást mína á öllu en einkum svo heita á þér. Svo gerðu það-ekki afmá þau öll- þau auðkenna hver ég er. Litlu hendurnar mínar listmuni búa til og marga merka hluti til marks um það sem ég vil. Litlu hendurnar mínar löngum vaxa svo skjótt er tíminn líður og líður, líður svo undurfljótt. Litlu hendurnar mínar leikandi við svo margt fást en ekkert þó jafnast á við er hendurnar mínar, lokast um þínar og umlykja alla okkar ást.
|
| Þú ert gestur nr. 100223 |