Eldri prinsinn okkar heitir Tristan Ingi. Hann er fæddur 13. maí 2002 sem er mánudagur, klukkan 16:56. Hann var 3100 gr (12merkur) og 50 cm. Hann kom mjög óvænt, en samt á réttum tíma, því settur dagur var þann 14. maí. Mamma var í leikhúsi kvöldið áður þar sem hún bjóst við að hann kæmi miklu seinna. Mamma fékk enga verki fyrr en á mánudagsmorgun og hann kom svo seinna um daginn.

Tristan Ingi var skírður í Garðakirkju þann 16. júní 2002. Presturinn sem skírði hann heitir Friðrik J. Hjartar.




Yngri prinsinn okkar heitir Alexander Helgi. Hann er fæddur þann 11. ágúst 2003 sem er líka mánudagur, klukkan 11:10. Hann var ekki nema 1640 gr (6 merkur) og 41 cm. Hann kom reyndar öllum á óvart, en hann kom 2 og hálfum mánuði fyrir tímann, settur dagur var ekki fyrr en 14. október. Mamman varð allt í einu mjög veik svo að hún þurfti að fara uppá spítala í sjúkrabíl og beint í keisara. Hann var í 3 vikur uppá vökudeild og fékk svo að fara heim því hann var svo duglegur að stækka.

Alexander Helgi var skírður þann 16. nóv 2003 í Garðakirkju. Presturinn sem skírði hann heitir Hans Markús.




Prinsessan kom svo á fimmtudegi í stað mánudags eins og bræður hennar. En hún kom þann 21. febrúar 2008, klukkan 19:25. Hún var 3035 gr (12 merkur) og 49 cm. Hún kom nánast á hárréttum tíma, en mamman var sett af stað 6 dögum fyrir tíman vegna meðgöngueitrunar, en fæðingin sjálf gekk vel, mamman var komin uppá spítala um 8:30 að morgni.

Agla Karitas var skírð í Garðakirkju þann 16. mars 2008. Presturinn sem skírði hana heitir Bára Friðriksdóttir.





Mamma okkar heitir Helga Kristín og er fædd 1982 og pabbi prinsessunnar á heimilinu heitir Árni og er fæddur 1983. Við eigum heima hjá mömmu okkar og Árna okkar á Akureyri.

Pabbi bræðranna heitir Gunnar Trausti og er fæddur 1982.












Tara Lovísa
Íris Harpa
Emelía Eir
Aníta Dís
Karen Lind
Kolbrún Soffía

Sigurður Ægir
Hilmar Lúther
Benedikt Kári
Birgir Andri

Amanda Rós og Helena Rós
Kristófer Svavar og Sunneva Rakel
Lilja Natalie og Hans Vignir Benedikt
Elmar Ægir og Anna Lísa
Emil Andri og Sveinbjörn Már
Ívar Ingi og Aníta Kristín
Aron Ísak og Kristín Vala
París Freyja og Krummi Thor
Sóley Sara og María Malín
Tinna Mjöll og Mikael Úlfur
Ari Gabríel og Nói Mikael
Rakel Talía og Víkingur Kári
Styrmir Snær og Brynjar Emil
Linda María og Daníel Ágúst
Sunneva og Sölvi

Camilla Dagbjört, Thelma Marín og Eva Karítas
Benedikt Bent, Bjartmar Óli og Baltasar Bói
Sara Sól, Birta Rós og Embla Dögg
Emilía Ósk, Magnea Dís og Birna Rún
Víðir Freyr, Hlynur Finnbogi og Emilía Björk


Þú ert gestur nr. 35852