| Verið velkomin! |
| Þetta er heimasíða Ásdísar Hvannar, Katrínar Eddu og Jóns Pálma Jónsbarna |
|
|
Um mig:
Ásdís Hvönn fæddist 23. september 2002 kl. 12:25. Hún var var 3630 g og 52 cm. Fram að skírn var hún kölluð Lilledís. Við fæðingu var hún með talsvert af alldökku hári og dökkblá augu. Nú er hárið ljóst og augun blágræn.
Katrín Edda fæddist þann 7. júlí 2005 kl. 13:18. Hún var 3440 g og 52 cm. Fram að skírn var hún oft kölluð smádúrí, smádýrið eða bara þetta hefðbundna, ástin, ljósið o.s.frv.! Við fæðingu var hún með helling af dökku hári og dökkblá augu en nú er hárið ljóst og augun blá. Jón Pálmi fæddist þann 23. maí 2009 kl. 13:06. Hann var 3800 g og 51 cm. Fram að skírn var hann kallaður Lilli. Við fæðingu var hann með helling af dökku hári og dökkblá augu en eins og hjá systrum er hárið nú ljóst og augun blá. Mamma barnanna heitir Eva Dís Pálmadóttir og pabbi Jón Jónsson. Fjölskyldan á heima að Norðurtúni á Egilsstöðum. Þar vinna mamma og pabbi saman á Sókn lögmannsstofu sem þau eiga. Ásdís Hvönn er í 4. bekk í Egilsstaðaskóla og Katrín Edda í 1. bekk. Jón Pálmi er á deildinni Lyngi á Skógarlandi en þetta er annar veturinn hans á leikskóla. |
|
|
Annað:
ÁSDÍS HVÖNN: Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: "Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.
KATRÍN EDDA: Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr. JÓN PÁLMI: Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu. Endilega skrifið í gestabókina eins oft og þið viljið. Við höfum ofsalega gaman af því að fá kveðjur frá vinum, ættingjum og kunningjum. Ef þið viljið svo vita eitthvað um daglega lífið okkar bendum við á vefdagbókina. |
| Þú ert gestur nr. 62068 |