Annað:
Sara
Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.
Fanney
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Fann" sem merkir snjór og viðliðnum "ey" sem merkir hamingja, - heppni.
Einnig talið að nafnið ætti að minna á Ísland, þ.e. „hin snævi þakta eyja“.
KRABBINN
22. júní - 22. júlí
Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.
ELSKU MAMMA OG PABBI:
EKKI TELJA EFTIR ÞESSA FÁU MÁNUÐI SEM ÉG ÞARFNAST ÓSKIPTRAR ATHYGLI YKKAR.
ÉG HEF MEIRA AÐ GERA EN NOKKRU SINNI VIÐ AÐ VAXA OG BÚA MIG UNDIR FRAMTÍÐINA.
EN ÉG SÝNI YKKUR ÞAKKLÆTI MITT.
Á HVERJUM DEGI FÆRI ÉG YKKUR EITTHVAÐ NÝTT, EINHVERJA DÁSEMD, EINHVER MERKI UM FRAMFÖR.
ÉG ER SMÁBARN SVO SKAMMAN TÍMA.
NÝTIÐ HANN EINS VEL OG ÉG.
ÉG STÆKKA OG HVERF Á BRAUT ÁÐUR EN ÞIÐ VITIÐ AF.
ÞITT FYRSTA BROS
Þú kveiktir von um veröld betri
mín von hún óx með þér.
Og myrkrið svarta vék úr huga mér um stund,
loks fann ég frið með sjálfum mér.
Það er svo undarlegt að elska
- að finna aftur til.
Að merkja nýjar kenndir kvikna,
að kunna á því skil
hvernig lífið vex og dafnar í myrkrinu.
Að hugsa um þig hvern dag, hverja nótt
er skylda sem ber umbunina í sjálfri sér.
Þitt fyrsta bros, þín fyrstu skref, þín fyrstu orð.
Þín fyrstu tár, þín fyrsta sorg, þín fyrsta hrösun.
Þín fyrsta ást, þinn fyrsti koss, þín fyrstu ljóð.
Mér finnst þú munir fæða allan heiminn alveg upp á nýtt.
Arnar Logi og Aron Daði
Júlía Líf og Ragnheiður Lovísa
Kristbjörg Ásta og Magnús Ingi
Börnin læra af uppeldinu
Barn sem elst upp við gagnrýni lærir að dæma aðra
Barn sem elst upp við óvild lærir að berjast
Barn sem elst upp við háð lærir feimni
Barn sem elst upp við skömm lærir sektarkennd
Barn sem elst upp við hvatningu lærir sjálfstraust
Barn sem elst upp við hrós lærir þakklæti
Barn sem elst upp við sanngirni lærir réttlæti
Barn sem elst upp við öryggi lærir trúnað
Barn sem elst upp við virðingu lærir að meta sjálft sig rétt
Barn sem elst upp við viðurkenningu lærir að leita kærleikans í heiminum
TIL ÞÍN
Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til
Bara í dag....
-ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast og hlæja þegar mig langar frekar að gráta...
-ætla ég að leyfa mér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína, og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag...
-ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í,
brosa og hrósa þér fyrir "fullkomna" litasamsetningu...
-ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll...
-ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt...
-ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur...
-ætla ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann...
-ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að vera þegar þú verður stór...
-ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd...
-ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til...
Bara í kvöld....
-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...
-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...
-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...
-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...
-ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig.
Amma...
Amma er kona sem sjálf á ekki börn
svo hún lætur sér þykja vænt um
drengi og stúlkur sem annað fólk á.
Ömmur hafa ekki neitt að gera, þær eru bara til.
Þær segja aldrei flýttu þér nú,
eða haltu áfram.
Flestar ömmur eru feitar
en þó ekki svo feitar
að þær geti ekki reimað skóna manns.
Þær geta sagt manni allt
sem mann langar til að vita,
eins og afhverju hundar hata ketti
og afhverju Guð er ekki giftur.
Ef þær lesa fyrir okkur
hlaupa þær aldrei yfir neitt.
Ömmur eru þær einu sem hafa tíma fyrir aðra.
Allir ættu að eiga ömmu!
Afi er...
maður sem á ekki börn sjálfur
svo að hann lætur sér þykja vænt um
drengi og stúlkur sem annað fólk á.
Afar hafa oft mikið að gera,
en hafa samt næstum því alltaf
tíma til að leika við mann,
þá láta þeir oft eins og algjörir kjánar,
og leyfa manni að gera næstum því allt
sem mann langar til að gera.
Mamma segir að afar geri börn óþæg.
Margir afar þurfa aldrei að greiða sér
af því að þeir eru með svo lítið hár.
Afar eru oft að kenna manni
hvað fuglar og fjöll og svoleiðis heitir.
Afar vita allt.
Allir ættu að eiga afa!
|