| 2008 | |
|
|
| Ég heiti Sævar Thor | |
|
Ég er í 1.bekk í grunnskóla og finnst það rosalega gaman. Ég er ofboðslega duglegur að lesa og það styttist í að ég geti náð mér í Harry Potter á bókasafnið og gluggað í hana. Ég byrjaði í haust að æfa handbolta með HK og finnst það nú ótrúlegt stuð. Ég mæti á æfingar einu sinni í viku og sýni hvað í mér býr. Í janúar byrjaði ég í júdó hjá Júdófélagi Reykjavíkur og er eins og fæddur í þessa íþróttagrein! Sumarið 2005 eignaðist ég lítinn bróður sem heitir Páll Jökull, en hann fæddist 23. júlí og ég er voða stoltur stóri bróðir. Ég eignaðist svo annan lítinn bróður þann 29. apríl 2006 sem mamma og Gísli eiga. Hann heitir Óskar Sólonog er voða krútt. Sendið mömmu bara póst ef þið viljið aðgang að síðunni, hún er læst! Emilía Nótt |
|
|
|
|
Ég er í FISKAmerkinu
FISKARNIR
19. febrúar - 20. mars Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum. MAMMA ER KONAN Sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. PABBI ER MAÐURINN Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt!! svo þegar maður veður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
|
|
| Þú ert gestur nr. 16527 |