... Velkomin í heimsókn til mín ...
Ég heiti Nökkvi Páll og er 6 ára skólstrákur og grallari



Um mig:
baby
Ég kom í heiminn, miðvikudaginn, 11. júní árið 2003 kl. 23.55, á Landspítalanum.
Ég var 3725gr (~15 merkur) og 55 cm

*Af gefnu tilefni er búið að læsa myndalbúminu-endilega hafið samband og fáið lykilorðið*

Til gamans má geta að þeir sem deila með mér afmælisdegi eru m.a. : Shia LaBeouf, Caroline Quinten, Joe Montana, Adrienne Brabeau, Chad Everett, Gene Wilder, Vince Lombardi, John Constable, Joshua Jackson, Hugh Laurie og Jacuqes Cousteau.

Ferðin í heiminn tók aðeins lengri tíma en áætlað var, en ég fæddist eftir 14 daga bið. Enda var ráðist í að ýta á eftir mér, svo þegar allt var komið á fulla ferð var ég enga stund að koma mér í heiminn, "ekki nema" 9 klukkutíma og 45 mínútur (frá fyrstu hríð,samkvæmt mónitor).
Það var bara svo gott að kúra í maganum á mömmu, en líka gott að kúra í fanginu hjá mömmu og pabba - ef ekki bara betra.

Þegar ég kom í heiminn var ég með stór dökkgráblá augu og ljóst hár með rauðum blæ. Í dag er hárið mitt ljóst og augun eru enn stór og blá.

Ég fæddist með alskarð hægra megin og er búin að fara í fimm skarðaðgerðir (þar af fjórar fyrir eins árs). Og hef auðvitað alltaf staðið mig eins og alger hetja.

Síðasta aðgerðin mín, í bili vegna skarðsins, var 6. september 2006, það var lítil aðgerð til að laga tog á vörinni. Eftir síðasta tékk hjá lýtalækninum mínum, Ólafi Einars, var svo ákveðið að ég fengi "aðgerðarfrí" þar til um það leyti sem ég færi í skóla.

Ljósmæðurnar sem tóku á móti mér heita Unnur B. Friðriksdóttir og Anna Harðardóttir. Ingólfur Einarsson barnalæknir, sem fæddist líka með alskarð, kom og sogaði upp úr mér legvatn.

Nafnið Nökkvi er út í loftið en Páll er í höfuðið á langafa mínum heitnum (móðurafi mömmu minnar), sem lést 8.júlí 2005. En ég er fyrsta blóðtengda langafabarnið hans.

NÖKKVI - fengið af no "nökkvi" sem merkir bátur, skip, steinskip.

PÁLL - bíblíunafn, fengið af lo "paulus" sem þýðir lítill.


TVÍBURARNIR 21. maí - 21. júní

Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði.

Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt.

Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika.

Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann.

Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.




Annað:

Hér fyrir ofan má sjá mynd af mér með skarðið, áður en það var lagað.

"Einstakur" er orð sem notað er þegar lýsa á því sem er engu öðru líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd.

"Einstakur" lýsir fólki sem stjórnast ad rödd síns hjarta og hefur huga í hjörtu annarra. "Einstakur" á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt.

"Einstakur" er orð sem lýsir þér best.

(Terry Fernandez)


Maí/Júní-vinir
Katla f.20/5
Kristinn Vikar f.2/6
Aþena Eir f.10/6
Lilja Berglind f.13/6
Aron Fannar f.14/6
Stefanía f.19/6
Aníta Kristín f.22/6
Vilmundur Máni f.24/6

Hér eru svo nokkrar skemmtilegar og fróðlegar síður

Breið Bros - um skarð í vör/góm(ísl. síða)
Wide Smiles - um skarð í vör/góm (bandarísk síða)
Face Forward (bresk spjall síða)
Clapa (bresk síða)
Sjónarhóll
Hetjur Barnalands
Doktorinn minn
Spjallsíða fyrir langveik börn
Hér er svo fæðingarsagan


Gestir síðan í október 2002
Þú ert gestur nr. 98687