Við erum þrjú systkinin;
Sunna : Fædd í Þýskalandi 1. desember 1997. Við fæðingu var hún 53 cm og 3880 g. Í dag er hún 166 cm á hæð. Hún er með brún augu og ljósbrúnt hár. Sunna hefur æft sund, dans, fimleika, frjálsar, ballett og verið í kór. Síðusta árið og rúmlega það hefur fótboltinn átt hug hennar og hjarta... Áfram Valur ! Besta vinkona hennar á Íslandi heitir Ína Guðrún.
Birta : Fædd í Þýskalandi 29. júlí 1999. Við fæðingu var hún 52 cm og 3690 g. Í dag er hún um 155 cm og 30 kg. Hún er með blá augu og ljóst hár. Birta æfir fótbolta með Val og handbolta með Þrótti en hefur áður æft júdó, sund, fimleika og frjálsar... já og verið í kór með Sunnu.
Sigurður : Fæddur á Íslandi 7. ágúst 2002. Við fæðingu var hann 51,5 cm og 3520 g. Það var Kristín Viktorsdóttir ljósmóðir sem tók á móti honum með pabba og hún er best. Siggi er með blá augu og ljóst hár. Hann er orðinn 130 cm. Hann er mikill boltastrákur og svo auðvitað algjör bílakall. Honum finnst gaman að vera með systrum sínum og þær eru alveg ótrúlega góðar við hann, enda þarf þess því drengurinn er þrátt fyrir ótrúlegan töffaraskap hræddur við næstum því allt.... Æfði handbolta og fótbolta með Val þessi tvö ár sem við stöldruðum við á Íslandi.b>
24. september 2006. Sunna, Birta og Siggi.
|