|
| Við erum bræðurnir Aron Ingi og Arnar Ingi |
|
Foreldrar okkar heita Þorbjörn Ingi Steinsson og Helga Hrönn Reynaldsdóttir. Þau eru ofboðslega ríka að eiga svona yndislega stráka og eru þeir gullmolar þeirra.
Aron Ingi Fæddist þriðjudaginn 30. apríl 2002, kl. 02.54, á kvennadeild Landsspítalans í Reykjavík. Hann var 3670 gr og 52 cm. Við fórum heim fimmtudaginn 2. maí 2002, þá áttum við heima á Mánagötu í Reykjavík, en í dag eigum við heima í Álfaskeiði í Hafnarfirði.
Aron Ingi er frekar rólegur að eðlisfari og auðvelt að tala hann til. Hans áhugamál eru vél- og ofurmenni, teikna, tölva og að horfa á myndir. Hann hefur mjög mikið hugmyndarflug og lifir sig alveg gríðarlega mikið inn í allt sem hann gerir, t.d. hreyfir hann sig mikið þegar hann er að horfa.....hehehe.......bara gaman að sjá það. Einnig finnst honum mjög gaman að fara í sund, útilegur og í Bólu. Aron Ingi byrjaði í skóla haustið 2008. Hann gengur í Lækjarskóla og stendur sig mjög vel. Aron þýðir Hinn Sterki og Ingi þýðir Konungur.
Arnar Ingi Fæddist miðvikudaginn 17. desember 2008, kl.18.45, á kvennadeild landsspítalans í Reykjavík. Hann var 3670 gr og 52 cm, alveg jafnstór og stóri bróðir :) Við fórum heim föstudaginn 19. desember 2008.
Hann dafnar vel og ætlar að flýta sér að stækka eins og stóri bróðir. Hann er nokkuð skapgóður og vær en lætur sko heyra í sér, sérstaklega þegar hann er svangur þá vill hann fá að drekka NÚNA! Hann er voðalega duglegur, nánast farinn að halda haus 2 1/2 mánaða, situr nánast einn 6 mánaða og hann var kominn með 8 tennur um 8. mánaða. Hann byrjaði að skríða 8 mánaða. Hann er einstaklega athugull og skoðar allt vel í kringum sig. Hann er mjög kátur að eðlisfari og er síbrosandi og hlær mikið, með einstaklega smitandi hlátur. Honum finnst skemmtilegast að fara í bað, gaman að leika sér á gólfinu, henda dóti í gólfið og svo finnst honum æði að hitta önnur börn ;) Ingi þýðir Konungur. |
|
|
Brynjar Örn
Þór Elí og Örvar Elí
Ásbjörg Nína og Ísak Nói
Lilja Rut
Hrafnhildur Lilja og Kolfinna
Fanney
Ágústa og Valur
Embla Dís
Gísli Þór
Stefán Bjarni
Halldís Embla
Jóukríli
Skagfirðingar
|
| Þú ert gestur nr. 28678 |