Hæ hæ við erum systkinin Jóhann, Birkir og Lilja Rún


Um mig:
Jóhann Benóný:
Ég kom í heiminn þann 18. september 2002 kl. 16:53. Ég vó 3040gr, var 12 merkur og 51 cm. Ég fæddist með stóru augun hennar mömmu og rauðbirkið hár. Ég var dálíltið líkur Jóhönnu frænku minni og Nonna Frænda þegar ég var lítill. Ég hef mikinn áhuga á dýrum og veit allt um risaeðlur enda var ég valinn dýrasérfræðingur á gamla leikskólanum mínum. Eg er rosa duglegur ad teikna og er i myndlistaskolanum a Akureyri.
Lilypie Kids birthday Ticker

Birkir Örn:
Ég kom í heiminn 2. október 2008 kl. 14:25. Ég vó 4170 g, næstum 17 merkur og 54 cm. Ég er með dökkt hár, smá skásett augu eins og stóri bróðir og mamma mín en ég er eiginlega mest líkur honum stóra bróður þegar hann var lítill. Ég eeeelska tónlist og er strax farinn að syngja enda ekki við öðru að búast með öll þessi músíkgen.
Lilypie 1st Birthday Ticker

Lilja Rún:
Ég kom í heiminn 10. febrúar 2010 kl. 9.33. Ég vó 3430gr og var 51 cm. Ég fæddist með svaka mikið svart har eins og pabbi en fékk augun hennar mömmu. Ég er voða róleg lítil dama.
Lilypie First Birthday tickers





MEYJARBARN

Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.

VOGARBARN

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.




Helgi frændi
Margrét Áslaug
Árni Hrafn
Birta Marín, Nanna Lilja og Lovísa Sóley
Kolfinna
Ingimar og Margrét
Sonja, Samúel og Viktoría Dís
Sigrún Freyja og Álfrún Embla
Sindri Dagur og Björn SKúli
Friðrik Helgi og Signý Rún
Jóhannes Kári og Eiríkur Ari
Þórunn María og Hanna Lilý
Þórdís Eva og Helga Gígja
Kristrún Edda
Andri, Bjarki og Logi




Þú ert gestur nr. 21741