Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Hjördís Lind
Hjördís Lind
Tæki og vélar eru ekki bara fyrir stráka. Stundum fæ ég að horfa á myndbönd í tölvunni og þá finnst mér einna skemmtilegast að sjá traktora, flugvélar og skip í stórsjó. Já því stærra og því meiri hasar, því betra.
Í dag fékk ég svo að sjá traktor í action og þótti mikið um. Ég var nýkomin á leikskólann og var að sýna pabba rennibrautina og önnur leiktæki þegar traktor að sópa götuna fór framhjá. Rennibrautin, krakkarnir og annað dót var gleymt með því sama og tekið á rás út að girðingu til að sjá þetta undratæki betur.
Ég var sem límd við þetta stórkostlega útsýni og skynjaði engan vegin umhverfi mitt að öðru leyti. Því miður tók þetta enda en sýningin var góð.
Stórkostlegt.
0 | 28.3.2012 11:16:10 #

Flutningur til Svíþjóðar

4. Febrúar 2012

Fjölskyldan er flutt til Svíþjóðar. Í byrjun ágúst vöknuðum við um miðja nótt til að fara á flugvellinn.  Ferðin gekk í rauninni vel. Krakkarnir voru mjög dugleg. Hjördís Lind var reyndar mjög þreytt í flugvélinni og sofnaði eins og skot þegar hún fékk vagninn sinn á flugvellinum í Stokkhólmi. Hinrik Dagur var mjög spenntur yfir öllu saman, reyndar svo spenntur að hann borðaði nánast ekki neitt allan daginn. Hann var orðinn mjög orkulaus og þreyttur þegar við vorum komin út, en samt alveg svakalega duglegur og hjálpaði til við að draga töskurnar. Hjólið datt undan einni töskunni þannig að hann þurfti að draga eina eða keyra vagninn hennar Hjördísar Lindar. Við vorum alveg svakalega kát þegar við komum loksins í litla kotið okkar. Krakkarnir gerðu sér að góðu að sofa á sófapullunum inni í hjónaherbergi í viku á meðan við biðum eftir dótinu okkar úr skipinu. Fyrsti mánuðurinn fór í að koma sér fyrir og venjast nýjum aðstæðum. Það tók dáldinn tíma að koma matarlistinni aftur í hann en að öðru leyti var hann fljótur að aðlagast og var mjög kátur með umhverfið og húsið. Hjördís Lind þurfti dáldið að venjast nýju húsi. Skólinn hans Hinriks Dags er alveg frábær, Stimmets skola. Hann er  búinn að vera svo duglegur, algjör hetja. Hann þekkti náttúrulega engann og skildi ekki stakt orð. Samt var allt svo spennandi og skemmtilegt. Til að byrja með var eins og hann frysi, það fór ekkert inn af nýja tungumálinu. En svo eftir c.a. mánuð þá fór hann að meðtaka nýja málið og c.a. 2-3 mánuðum eftir að hann fór í skólann var hann farinn að hlægja og leika sér með hinum Svíjunum. Hann spilar fótbolta og handbolta og er búinn að eignast fullt af vinum þar. Hann virðist eiga meira sameiginlegt með þeim þó að honum líki alveg vel í skólanum. Flestir þessara íþróttastráka eru í öðrum skóla og erum við að spá í að leyfa honum að fara í hann í staðinn.  Hjördís Lind er mjög hrifin af leikskólanum sínum, Diamenten heiti hann. Hún er sérlega hrifin af konu sem heitir Camilla. Yfirleytt er hún mjög kát að fara í leikskólan þó að það hafi komið smá afturkippur eftir jólafríið. Aðlögunin gekk mjög vel. Hún tók langan tíma og vorum við Steinn hjá henni minnir mig í meira en viku. Því miður á að loka þessum litla sæta  leikskóla þannig að hún þarf að fara eitthvert annað næsta haust. Húsið okkar er alveg yndislegt og okkur fannst strax við ættum heima þar. Fyrir utan er lítill róló og húsið liggur við skóg og vatn, Öringesjön. Vatnið og skógurinn er alveg yndislegt. Við höfum oft farið í litlar skógarferðir og oft farið niður að kletti eða út á litla strönd
sem heitir Öringestrand. Þau hafa bæði prufað að busla í vatninu og núna um daginn fórum við á skauta. Náttúran er yndisleg og veðrið ljúft og milt. Þó við söknum vina og fjölskyldumeðlima þá er líka yndislegt að vera út af fyrir sig og njóta félagsskapar hvors annars. Við reynum að hjálpa hvort öðru í því sem við tökum okkur fyrir hendi til að allt gangi betur. Þessi reynsla hefur þjappað okkur meira saman sem fjölskylda.

Kveðja,
Bríet.

0 | 4.2.2012 15:47:54 #

Haustið 2010

0 | 0 | 17.7.2011 22:41:37 #

1 árs afmæli

0 | 0 | 17.7.2011 22:27:40 #

Koppurinn í sveitinni

Nú erum við fjölskyldan flutt úr Frostafoldinni og í sveitina. Flutningarnir voru bæði fjörugir og gríðar mikil vinna. En einnig heilmikið rót fyrir litlu dömuna. Það tók hana dágóðan tíma að róast í sveitinni, bæði var mikill erill og stress í foreldrunum og svo sá hún þá ekkert svo mikið því Hjördís amma og Guðjón afi sáu um að passa hana á meðan mesti tryllingurinn stóð yfir. En í sveitinni unir hún sér nú mjög vel. Hún stjórnast í öllum eins mikið og hún getur, líka hundinum, skammar hann og klípur. Amman og afinn skruppu í ferðalag á Bensanum. Hjördís Lind var nú ekki kát með það. Hún grét mikið þegar hún sá á eftir þeim í stóra bílnum og talar aftur og aftur um 'afi dóa bílum, amma dóa bílum, konu dóa bílum'. Hún er heldur ekkert kát með að hafa einungis eitt stykki mömmu sem félagsskap, pabbinn er í vinnunni og Hinrik Dagur afar upptekinn í heyskap niður í Súluholti. Hún er þó byrjuð á einu afrekinu og það er að nota kopp.  Fyrsta skiptið sem hún pissaði í koppinn brosti hún stóru brosi þegar hún fann að eitthvað var að gerast, stóð upp og potaði stein hissa í afraksturinn og sagði 'hvað er þetta?'. Nokkrum dögum síðar kom kúkur í koppinn, aftur koma stórt bros á andlitið og svo eitt spurningamerki, hún benti á og sagði 'jé?!' (Ég). Eins og hún væri að spyrja hvort þetta hafi komið úr henni!

Við erum búin að vera dugleg að heimsækja Rúnu ömmu. Þar höfum við líka hitt frændur okkar Hjörleif Mána og Jón Oliver. Í gær komu vinir okkar Sara, Rikki, Matthías, Íris og Sóley öll í heimsókn í sveitina. Það var mikið fjör og alveg yndislegt að fá þau í heimsókn. Ofsalega gaman. Stóru krakkarnir léku sér mikið úti og voru greinilega mjög kát saman. Litlu dýrin rifjuðu upp gamla takta, rífa af og grenja, bíta og slá, en líka prakkarast saman og leika. Í dag fórum við svo í afmæli til Arndísar Maríu og Hildar Emblu. Þar hitti Hjördís Lind náfrænda sinn og vin hann Tristan.

Lífið er rólegt og notalegt í sveitinni og þar er alltaf nóg að gera.

Kveðja, Bríet.

0 | 17.7.2011 21:54:20 #

Orðaforði Hjördísar Lindar eykst með hverjum deginum. Hún gerir sig vel skiljanlega um það sem skiptir máli, ef hún vill eitthvað að borða segir hún "mhm mammi" og ef hún vill ekki eitthvað að borða segir hún mjög ákveðið og skýrt nei. Einnig ef hún vill fara út, þá segir hún "úhú". Svo eru náttúrulega mörg önnur orð komin, "Giggi" frændi fékk að heyra nafnið sitt á afmælisdaginn minn. "Amma" hefur komið, en sjaldan þó. Oftast er talað um bæði hjónin sem "avi". Hún talar oft um fólkið í sveitinni, "Avi" "oho" er Kolur og "Atto" er Anton, þetta er oft sagt í röð aftur og aftur. Sóley fær "lólei", Hinrik Dagur "Bói" eða "Búi", "nona" er tómatsósa, "gekka" er að drekka. "Gúkka" er yfir dúkku, úlpu og að kúka. "Dóó" er nýtt orð, er yfir stóll. Í gær sagði hún líka margra orða setningu, "mamma, hvar er pabbi". Auk þess eru mörg önnur orð að dúkka upp á hverjum degi.

Kveðja, Bríet.

24.05.2011

0 | 24.5.2011 09:36:28 #

Hjördís Lind tekur virkan þátt í heimilislífinu í Frostafoldinni. Í gær var ég að baka marengstertu til að fara með í vinnunna í tilefni afmælis míns. Allt í einu tekur ég eftir að kakan er óeðlilega brún miðað við stuttan tíma í ofninum. Þá var hitinn kominn í 300°C, í stað 140°C eins og átti að vera. Grunar mig sterklega ákveðna hjálpsama einstaklinga. Ekki nóg með það að kakan var ónýt heldur þurfti að lofta út úr íbúðinni, í miðju öskufallinu.

Ég verð að bæta við að litla skottið ákvað að skreppa í stutt ferðalag um daginn. Ég sá hana bregða fyrir á litla stólnum sínum við útidyrnar. Ég skrepp hálfa mínútu frá og hún er horfin. Við Steinn stukkum strax út og þá var hún komin fyrir horn á húsinu, við innganginn hjá Bylgju. Eins og afinn í sveitinni segir, hún er mjög fljót að nýta tækifærin.

Kveðja, Bríet.

24.05.2011

0 | 24.5.2011 09:30:49 #

Hjördís Lind er lítil pabbastelpa. Tvær fyrstu setningarnar hennar snúast um pabbann hennar. Sú fyrsta var 'pabbi úti', eða 'babi údi' og sú seinni kom núna í dag og hún var 'hvar er pabbi' eða 'ae pabbi'. Svo kallar hún mömmu sína yfirleytt ekki neitt, en ef hún er nefnd á nafn þá er hún oftast kölluð pabbi.

0 | 15.2.2011 21:42:55 #

Hjördís Lind átti spennandi og skemmtileg jól. Maturinn fannst henni ekkert spes en pakkarnir alveg sérlega skemmtilegir. Hún tók upp hvern á fætur öðrum, reif og tætti alveg óskylt því hvort hún átti pakkann eða ekki. Hún var svakalega spennt yfir dúkkunni sem Rúna amma gaf henni. Þegar mamman var að taka dúkkuna úr pakkningunni fór hún að gráta því það tók svo langan tíma. Hjördís Lind slapp við að verða lasin á sjálfum jólunum, ólíkt Hinriki Degi sem fór miklu verr út úr því en hún. Jólatréð var mjög vinsælt í kringum hátíðirnar. Hún tók sín tímabil að stela jólakúlum en lét það svo eiga sig þess á milli. Jólasveinar voru og eru í miklu uppáhaldi hjá henni. Mamman kenndi henni að segja "Ho ho ho" og þetta segir hún á sinn máta í hvert skipti sem hún sér jólasvein. Áramótin voru ósköp róleg hjá fjölskyldunni. Hjördís Lind var mjög hrifin af flugeldunum og stökk út sólstofu þegar einhverjar sprengingar heyrðust. Þeir trufluðu hana þó ekki við svefnin á áramótunum en stöku sinnum vaknaði hún vegna þeirra eftir áramót.

0 | 6.2.2011 14:54:58 #

Fyrsta skiptið sem ég sagði tvö orð í einu, það var "Papa úti", þá meinti ég Pabbi úti
Hjördís Lind - 16 mánaða
Fyrsta skiptið sem ég fékk graut
Hjördís Lind - 14 mánaða

Tölvupóstur frá Steini sem er heima með Hjördísi Lind:

Hæ,

 

langaði að deila með þér smá af því sem dóttir þín er búin að gera í dag.

 

Hún gekk að sjálfsögðu í gildruna í morgun, stal tóma hafragrjónapakkanum og þótti ansi ánægð með sig. En hún var fljót að átta sig. Hristi pakkan og heyrði ekkert hljóð í innihaldinu. Hún opnaði hann því og hellti úr honum sallanum sem var eftir. Ekki var hún ánægð sú litla þannig að hún opnaði skápinn aftur og skilaði tóma hafragrjónapakkanum. Takk en nei takk. Hún reyndi svo síðar að hertaka stóra pakkan sem ég keypti í gær.

 

Þegar hún kom svo inn úr vagninum eftir morgunlúrinn þótti henni sem lopapeysan sín, sem henni þykir afar vænt um, væri orðin heldur skítug og þyrfti á þvotti að halda. Hún tók sig því til og setti hana í þvottavélina og lokaði á eftir og reyndi að fikta í tökkunum á vélinni til að setja hana af stað.

Kv. Bríet.

0 | 13.10.2010 13:28:23 #

Sæta sæta! hvert fór allt dökka hárið? :) Til hamingju með eins árs afmælið!
Heiða Björk Halldórsdóttir | 0 | 3.10.2010 20:23:30 #

Nú er afmælisveislan yfirstaðin. Hjördís Lind hélt partý með frænda sínum honum Tristani. Veislan var stórglæsileg, haldin í Skyggnisholti og fullt af fólki mætti. Hjördís Lind var reyndar hálflasin, var með kvef og búin að sofa illa næturnar á undan. Hún skemmti sér samt konunglega í veislunni og mátti ekkert vera að því að hvíla sig í vagninum. Frændsystkynin voru ansi skondin saman. Þau t.d. keyrðu hvort annað í dúkkukerrunni hennar Hjördísar Lindar. Að venju fékk hún fult af fallegum gjöfum. T.d. baby born dúkku frá Hjödísi ömmu og Guðjóni afa. Englastyttu frá Hinriki Degi. Úlpu og bleikar buxur frá Rúnu ömmu. Bleikar buxur og peysu frá Bíbí ömmu. Nýja prjónapeysu frá Söru og sokkabuxur. Útvarpstæki frá Rúnari og Mæju. Pening frá Hafliða afa, Gumma frænda og Ástrúnu frænku. Hestapeysu frá Helga og Hafdísi. Bók frá Valgerði. Bleikar buxur og rauða peysu frá Óla og Siggu. Sokka og boli frá Dísu ömmu og Helgu.

Á afmælisdaginn sjálfan var pabbinn ekki heima en við Hinrik Dagur keyptum köku og Hinrik Dagur söng afmælissönginn og gaf litlu systur englastyttuna fínu.

Kveðja, Bríet.

0 | 3.10.2010 17:14:00 #

Þegar ég var 12 mánaða var ég orðin 74,50 cm og 9,63 kg.
Hjördís Lind - 12 mánaða

Útileiga Þingvöllum

0 | 0 | 7.9.2010 16:43:31 #

Sumar 2010

0 | 0 | 7.9.2010 15:57:14 #

Gönguferð á Úlfarsfell

0 | 0 | 7.9.2010 15:52:28 #

Sumarbústaðarferð á Egilsstaði

0 | 0 | 7.9.2010 14:38:23 #

Apríl og maí 2010

0 | 0 | 7.9.2010 14:22:01 #