| Lykilorðið á síðuna er nafnið hans afa (pabba mömmu) |
|
|
|
Ég fæddist 10. október 2002 á Landspítalanum. Ég var 16 merkur og 54,5 cm. Ég fæddist með mikið dökkt hár og dökkblá augu. Mamma heitir Gyða og pabbi heitir Sigurjón. Fæðingin gekk ekkert allt of vel og tók langan tíma, en á endanum toguðu læknarnir mig út með sogskálum því ég var víst eitthvað skökk þarna inni. Ég var orðin frekar þreytt þegar ég loksins kom út þannig að læknarnir vildu að ég væri á vökudeild meðan ég væri að jafna mig, en ég var svo hraust að ég fékk að fara til mömmu eftir 4 tíma. Við vorum í eina nótt á Hreiðrinu en fengum svo að fara heim daginn eftir, á 24 ára afmælisdegi mömmu. |
|
|
Endilega skrifaðu í gestabókina, það er svo gaman að sjá hverjir kíkja á síðuna mína!
Stjörnumerkið mitt Vogin 23. september - 23. október Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: "Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína. Um nafnið mitt! Merking nafnsins Sara er Prinsessa og er komið úr Biblíunni.Sara er gáfuð kona sem vekur aðdáun og virðingu þeirra sem henni kynnast. Hún er einstaklega góð manneskja með hjarta úr gulli. Einkaréttur smábarna Ef mér finnst það flott, þá á ég þaðEf ég held á því, þá á ég það Ef ég næ því af þér, þá á ég það Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það Ef ég á það, þá má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana Ef það líkist dótinu mínu, þá á ég það....... online |
| Þú ert gestur nr. 41303 |