Við erum Alísa Ruth og Krister Frank!


Um okkur:
Þann 24. september 2002 kom Krister Frank í heiminn,
en þá voru mamma og pabbi búin að bíða eftir honum
í heila viku. Mamma heitir Dagný og pabbi minn Andri
og er hann þeirra fyrsta barn. Þegar hann fæddist var
hann 16 merkur og 53 cm, með mikið svart hár og
brún augu.



Fljótlega fékk hann viðurnefnið "Kútur", sem á mjög
vel við hann og fylgir honum enn í dag :) Krister Frank
er líka mjög skýr og skemmtilegur strákur, heillar alla
sem hitta mig upp úr skónum !

Þann 14. desember 2005 eignaðist Krister Frank
svo litla systur, Alísu Ruth, en hún er algjör prinsessa.
Þegar hún fæddist var hún 15 merkur og 52 cm,
með dökkt hár og brún augu.

Alísa Ruth er algjör snúlla, veit alveg hvað
hún vill en er samt mjög róleg og góð. Þá er stutt
í brosið hjá henni, er alltaf kát og glöð - svo lengi
sem hún fær nóg að borða ;)


Við erum ekkert smá góð saman, erum alltaf
að knúsast og kyssast - enda erum við svvvvooo
yndisleg. Við ætlum að deila þessari síðu saman
- endilega mundu eftir að kvitta fyrir komuna í
gestabókina okkar :)



Lykilorðið að læstu síðunum er nafnið á bænum sem við búum í ;o)





Annað:
Pabbi okkar og amma Stína voru viðstödd þegar
Krister Frank fæddist. Er hann fyrsta barnabarn í
báðum fjölskyldum, þannig að það biðu allir mjög
spenntir eftir að hann kæmi í heiminn.


Pabbi var viðstaddur þegar Alísa Ruth kom í heiminn,
en hún var nú heldur meira að flýta sér en bróðir
hennar. Hún fæddist rétt fyrir hádegi - eða kl. 11.55
- og var næstum því búin að skjótast í heiminn í
sjúkrabíl á leiðinni í bæinn !






VOGIN - KRISTER FRANK

23. september - 23. október



Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr
og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum
sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi
og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir
vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa
margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að
búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft
og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið
og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp
hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess
vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að
rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars
með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku.
Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að
svara með því að spyrja:
"Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði
til að vega og meta hlutina áður en hún tekur
ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt
að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu
til að þroska listræna hæfileika sína.

BOGMAÐURINN - ALÍSA RUTH

22. nóvember - 21. desember


Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið
er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist.
Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari
snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn
er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist
þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin
þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau
fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk.
Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið
dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls
konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann
er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar
annars vegar og ábyrgðar-kenndar og aga hins vegar.
Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann
á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar
á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð
kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska
með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið
verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að
komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um
nágrennið og síðan lengra þannig að það getur
verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni.
Góða ferð.










ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ





Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.

Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.

Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.

Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.

Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.

Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.

Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.

Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.

Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.

Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.

Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.







Þú ert gestur nr. 28411