VIÐ HEITUM ÍSAK BERGMANN, JÓEL ÞÓR OG DANIEL INGI OG ERUM HIMNESKIR NÝTT LYKILORÐ: Sendiði mömmu póst á jofridur_maria@hotmail.com







Ísak Bergmann: Ég fæddist Sunnudaginn 23.03.03 kl.09.03 á Good Hope spítalanum í Sutton Coldfield í Englandi. Ég fæddist 3633 gr. eða 14,5 merkur og 51 cm.Ég fékk þad fallega nafn Ísak Bergmann, en Ísak fannst mömmu og pabba bara fallegt nafn með 2 fyrstu stöfum lansins míns, Íslands og 2 fyrstu stöfum bæjarins míns,Akranes sem er besti bær í heimi. Bergmann er aftur á móti í höfuðið á frænda mínum honum Birni Bergmann sem er yngsti bróðir pabba míns !! Pabbí heitir Jói Kalli og er fæddur ´80 hann er þriðji elstur af 6 bræðrum. Mamma heitir Jófríður María og er fædd ´81 og er yngst af 6 sistkynum. Ég á 2 lítla bróður sem heita Jóel Þór ´05 og Daniel Ingi ´07.Ég er 9. barnabarn mömmumeginn og strákur nr.7 en nr. 4 í röðinni pabbameginn og fyrsti prinsinn takk fyrir !! Amma mín og Afi í móðurætt heita Kristín og Gulli. Svo á ég 2 ömmur og afa í föðurætt, þau heita Badda og Siggi og svo Hrönn og Guðjón...!! Við búum í Manchester á Englandi og erum svakalega ánægð hér. Ég er skólastrákur en hér í Englandi byrjar maður í skóla 3 ára. Skólinn minn heitir Bridgewater school og finnst mér hann alger æði.
Jóel Þór: Ég fæddist á Warwick Hospital í Englandi þann 7.mars 2005 kl.09.12. Ég mældist 4300 gr. eða rúmar 17 merkur og 56 cm við fæðingu, sem sagt stór og flottur strákur. Mamma og pabbi gáfu mér það fallega nafn Jóel Þór en Jóel er útí loftið en Þórs nafnið er frá afa Gulla sem heitir Guðlaugur Þór. Ég á 2 bræður,einn rosa góðann stóra bróðir sem heitir Ísak Bergmann og er hann fæddur í mars 2003 og einn yndislegann litla bróður sem heitir Daniel Ingi og fæddist hann í apríl ´07. Ég er nr.10 í barnabarnaröðinni mömmu megin en nr.6 í pabbafjölskyldu. Við fjölskyldan búum í Englandi og finnst okkur það algert æði. Ég er á leikskóla sem heitir The Fledglings og deildin mín heitir Tweenies!!!
Daniel Ingi: Ég fæddist á St. Marys hospital í Manchester Þriðjudaginn 3 apríl kl.01:26. Pabbi var viðstaddur fæðinguna og klippti á naflastrenginn hjá mér eins og hann hefur reyndar gert hjá okkur öllum bræðrunum. Ég var 3.975 gr. eða 16 merkur og 53 cm. Ég á 2 stóra bræður sem eru sjúkir í mig en þeir heita Ísak Bergmann og Jóel Þór. Það var einmitt Ísak sem fékk að velja nafnið mitt en hann valdi Daniel og mamma og pabbi gáfu mér seinna nafnið en það er Ingi í höfuðið á Ingu okkar, sem sagt Daniel Ingi. Mamma og pabbi eru hamingjusamasta fólk í heiminum að eyga svona fallega 3 englakroppa sem við erum !!!














Fæðing Ísaks Bergmanns: Fæðingin hjá mömmu minni gekk rosalega vel, en hún missti vatnið kl 00.00,en var ekkert farin ad fá hríðir þá. Um 1.00 var hún svo komin á spítalann og þá voru hríðarnar ad byrja fyrir alvöru. Þá skoðaði ljósmóðirin hana og hún var komin með 2 í útvíkkun. Eftir það fór hún ofan í baðkar og fékk gas sem deyfilyf og hún var þar ofaní til um 5 leitið, en þá vildi hún fá mænudeyfingu....sem hún sér sko EKKI eftir. Hún fann ekki neitt fyrir hríðunum eftir það og þetta var alger draumur, hún sofnadi næstum thví meira ad segja.Pabbi stein-sofnadi aftur á móti !! Um korter í 8 var mamma síðan komin með fulla útvíkkun, en læknirinn sagði henni ad fara ekki ad rembast fyrr en hún fyndi ad hún þyrfti þess, en það fannst henni soldið erfitt,þar sem hún fann ekki fyrir neinu. En um korter í 9 fór hún samt ad rembast og kl 9.03 var ég fæddur, fallegasti drengur sem mamma mín og pabbi minn hafa nokkrum sinnum augum litið !!!
Fæðing Jóels Þórs:Mamma fékk fyrsta verkinn kl.5.30 og sofnaði aftur en um 6 kom önnur vond hríð og svo 2 á næsta hálftíma. Þá vakti hún pabba og þau fóru á spítala um 7.00 Þá var mamma komin með 7 í útvíkkun. Hún vildi endilega fá mænudeyfingu en hún var þá bara að anda að sér gasi sem henni fanst ekki gera mikið fyrir sig annað en að gera sig flökurt...enda ældi hún einu sinni. Læknirinn sem átti að gera deyfinguna kom aldrei þar sem það voru akkúrat vaktaskipti og fæddi mamma mig bara í heiminn kl.9.12. Það gekk allt rosa vel og stóð pabbi sig ekkert smá vel og nuddaði bakið á mömmu allann tímann því mömmu fannst verkirnir bara vera þar. Það var íslensk ljósa sem tók á móti mér sem heitir Ingunn og var hún algert æði....sú allra besta !!!
Daniel Ingi: Mamma byrjaði að fá verki fyrir alvöru um 3 leitið þann 02.apríl og fór þá í bað og reyndi að slaka á. Um hálf 8 voru verkirnir svo orðir það slæmir að pabbi fór með múttu uppá spítala og var kellan komin með 4-5 í útvíkkun. Um 11 fékk hún svo mænudeyfingu og þá gat hún slakað aðeins á, deyfingin virkaði reyndar ekki alveg strax en sló samt strax á mest af verkjunum. Mamma og pabbi reyndi svo bara að leggja sig þar sem mamma var orðin alveg verkjalaus uppúr miðnætti en þá var belgurinn líka sprengdur.Um 1.20 var mamma svo komin með 10 í útvíkkun og prufaði hún að rembast þar sem mænudeyfingin var byrjuð að fara úr og vitir menn eftir einn lítinn rembing var hausinn kominn út og þá prufaði hún aftur og þá var prinsinn fæddur, alveg ótrúlegt allt saman, mamma hefði ekki getað trúað þessu hvað þetta var auðvelt allt saman. Prisninn laggðist svo beint á mjúku bumbunna hennar mömmu þar sem hann hafði það gott i góðann klukkutíma eða þangað til hann var viktaður og klæddur og reyndist hann vera 3.975 gr og 53 cm.