| Velkomin(n) í heimsókn til mín. |
| Ég heiti Daníel Breki |
|
|
Um mig:
Það er búið að læsa albúmi og vefdagbók á síðunni minni, og lykilorðið er fæðingarbær pabba míns :-) Eins er ykkur velkomið að senda póst til að fá orðið.
Hæ hæ! 10 ára töffarinn hér... Ég er í 5-X í Kópavogsskóla og æfi fótbolta með 5. flokki HK, svo það er nóg að gera. Annars fæddist ég í Reykjavík þann 25. maí 1998. Þá var ég algjör písl eða tæpar 17 merkur (4.180 g) og 53 cm á lengd. Núna er ég hins vegar orðinn miklu, miklu stærri... Ég er bláeygur eins og mamma og pabbi og með ljóst hár eins og pabbi minn. Endilega kíkið í vefdagbókina eftir nýjustu fréttum af mér :-) |
|
|
Annað:
Ég á heima í Kópavoginum með mömmu minni sem heitir Hólmfríður Kristjánsdóttir og pabba mínum sem heitir Barði Halldórsson, og svo bræðrum mínum, þeim Kristjáni Pétri sem er 6 ára
og Tómasi Orra sem er 2ja ára. Endilega skrifaðu í gestabókina! Bestu kveðjur, Daníel Breki
Bara í dag.... -ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast og hlæja þó mig langi til að gráta ... -ætla ég að leyfa mér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína, og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag... -ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í, brosa og hrósa þér fyrir "fullkomna" litasamsetningu... -ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll... -ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt... -ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur... -ælta ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann... -ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að vera þegar þú verður stór... -ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd... -ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til... Bara í kvöld.... -ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig... -ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu... -ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum... -ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum... -ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig. Ég er svo heppin að eiga þig og bið ekki um neitt... ...nema annan dag með þér... |
| Þú ert gestur nr. 25822 |