| Velkomin(n) í heimsókn til mín. |
| Ég heiti Kristján Pétur og er 6 ára. |
|
|
Um mig:
Það er búið að læsa albúmi og vefdagbók á síðunni minni. Lykilorðið er fæðingarbær pabba. Eins er velkomið að senda póst til að fá lykilorðið.
Ég heiti Kristján Pétur og fæddist á Landspítalanum þann 14. október 2002. Ég var rosa bolti, eða tæpar 19 merkur (4.700 g) og 53 cm á lengd. Ég var með mikið af dökku hári og dökkblá augu við fæðingu. Núna er ég hins vegar ljósskolhærður og með grænleit augu. Ég er gjörsamlega boltasjúkur, og æfi handbolta og fótbolta með HK. |
|
|
Annað:
Ég á heima í Kópavoginum með mömmu minni sem heitir Hófí, pabba mínum sem heitir Barði, stóra bróður mínum, honum Daníel Breka og Tómasi Orra sem er algjör frekja.
Ég er í 1. M í Kópavogsskóla og kennarinn minn heitir Heiður. Ég vona að þú skrifir í gestabókina mína, og í vefdagbókinni er að finna nýjustu fréttir af mér og afrekum mínum Bestu kveðjur, Kristján Pétur Einkaréttur smábarna..... Ef mér finnst það flott, þá á ég það Ef ég held á því, þá á ég það Ef ég næ því af þér, þá á ég það Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana EF það líkist dótinu mínu, þá á ég það "Ég brosi af því að ég er mamma þín, ég hlæ vegna þess að það er ekkert sem þú getur gert við því." "Mömmur segja stundum elskan þegar þær nenna ekki að segja pabbi!" "Hvaða maður sem er getur orðið faðir. Það þarf einstakan mann til að vera pabbi" "Faðir er sá sem veldur því að þér finnst þú ómissandi þótt engum öðrum finnist það." "Amma er svona mamma mömmu eða pabba." "Amma er oft eldgömul en getur líka verið um 30 ára." "Afi er svona eins og amma nema bara KK." Mér er sem leggi ég lófann á litla höfuðið þitt biðjandi Guð að geyma gullfagra barnið mitt. Benedikt Gröndal |
| Þú ert gestur nr. 26683 |