Velkomin á heimasíðuna mína
Ég heiti Thelma Kristín Tómasdóttir og 14. september eignaðist ég yndislegan bróður sem heitir Róbert Atli


Um mig:
Lilypie Baby Ticker
Ég fæddist 18. september. Ég vó 3940 gr og var 52,5 cm á lengd. Ég var með skollitað hár og blá augu. Foreldrar mínir heita Ellen Birna Loftsdóttir og Tómas Þór Ellertsson og þau eru rosalega stolt af mér. Ég er fyrsta barn þeirra og fyrsta ömmu-og afabarnið þannig að þið getið ímyndað ykkur hvað er stjanað mikið við mig




Annað:
Takk fyrir að kíkja í heimsókn og endilega skrifið í gestabókina



MEYJAN
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.

Þú ert gestur nr. 28297