Ég kom í heiminn þann 20. ágúst 2003 klukkan 16:21 á Heilbriðgðisstofnun Suðurnesja. Ég var á endanum tekinn með keisara, eftir langa baráttu mömmu að koma mér í heiminn. Ég var 3.085 g (12 merkur) og 51 cm. Mamma hélt að ég myndi nú vera aðeins stærri því hún greindist með meðgöngusykursýki þegar hún var komin ca 6 mánuði á leið, en þar sem hún var svo rosalega dugleg að halda sykrinum niðri án lyfja var ég bara svona nettur og fínn!

Ljósmóðirin mín heitir Steinunn Kr. Zophaníusardóttir og hún var alveg yndisleg við mig og mömmu...besta kona í heimi!! Og læknirinn minn heitir Konráð Lúðvíksson, og mamma er honum ævinlega þakklát fyrir að hafa ekki sent hana heim eftir að gangsetningarnar tvær gengu ekki.





Mamma mín heitir Theodóra Mýrdal (fædd í Reykjavík, 12. ágúst 1975) og pabbi minn heitir Gunnar Björn Björnsson (fæddur á Fáskrúðsfirði 19. júlí 1974). Mamma og pabbi eiga fjórar fallegar kisur sem heita Diljá, Grísli, Bonní og Lísa. Ég er fyrsta barn foreldra minna og er augasteinninn þeirra. Mamma og pabbi eru líka í skóla að læra, mamma er í fjarnámi við Kennaraháskóla Íslands á leikskólabraut og er á öðru árinu og pabbi er í fjarnámi við University of South Africa og ætlar að ná sér í BS gráðu í stærðfræði. Ég byrjaði á leikskóla þann 15. ágúst 2005 og heitir hann Hjallatún og heitir deildin mín Bjarmaland. Mér finnst ofsalega gaman á leikskólanum mínum og hef ég lært alveg rosalega mikið!! Ég eignaðist fallega systur þann 2. mars 2006. hana Jóhönnu Örnu og á hún sér síðu hérna á barnalandi og er tengill á síðunni hér neðar. Ég er auðvitað besti bróðir í heimi og þykir mér ofsalega vænt um hana Jóhönnu Örnu






Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.







Ég var skírður þann 5. október 2003 í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði og var það sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir sem skírði mig. Nafnið Andri fannst mömmu pg pabba vera svo ofsalega fallegt og er ég skírður Þór í höfuð á móðurafa mínu.

Nafnið Andri er norrænt nafn og merkir skíði. Að baki nafninu Þór er þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði.




Elsku Andri Þór

Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til

Þín mamma og þinn pabbi




Jóhanna Arna - litla fallega systir mín

Alexandra Helma

Aldís skvísa

Brynja Hlíf og Skarphéðinn

Gylfi Snær, Pétur Ingi og Anna Rakel

Jón Ágúst

Magnús Már frændi

Elín María frænka

Bumbukríli Ingu Láru og Njáls frænda

Prinsessa Ólafar Helgu











Núna er/u...

að skoða heimasíðuna mína!

Gestir á heimasíðuna mína síðan 27. desember 2002
Þú ert gestur nr. 73113