|
| Halló halló, ég heiti Styrmir Þór og ég er 11 ára! |
|
|
Um mig:
Velkomin í heimsókn til mín, ég heiti Styrmir Þór. Ég fæddist þriðjudaginn 5.desember árið 2000 á sjúkrahúsinu á Selfossi, kl.11:20. Ég var 3825 gr. og 52 cm. Þegar ég fæddist var ég með dökkbrúnt hár og dökkgrá augu, en núna er ég með alveg ljóst hár. Mömmu og pabba finnst ég vera sætastur í öllum heiminum!
Ég bý á Selfossi, með mömmu minni, sem heitir Hafrún, pabba mínum, sem heitir Óskar Örn, og systkinum mínum, Dagmar Rut, Ölmu Hrund og Grími Frey. Ég á eina stjúpsystir sem heitir Sunna Líf og einn stjúpbróðir sem heitir Óðinn Örn. Vísa sem langafi minn orti til mömmu minnar þegar hún var lítil: Eigðu fagurt æskuvor Að því besta leita Megi öll þín ævispor Unaðsstundir veita. -Elías Mikael Vagn Þórarinsson Ýttu hér til að komast inn á sögur og allskonar skemmtilegt Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI |
|
|
|
Annað:
*LITLU HENDURNAR MÍNAR* Litlu hendurnar mínar langar að gera svo margt, þegar ég læri og leik mér og lifi frá degi til dags, við að klæða mig, klippa og föndra og kætast til sólarlags. Fingraförin mín set ég á flesta staði hér, þau tákna ást mína á öllu en einkum svo heita á þér. Svo gerðu það-ekki afmá þau öll- þau auðkenna hver ég er. Litlu hendurnar mínar listmuni búa til og marga merka hluti til marks um það sem ég vil. Litlu hendurnar mínar löngum vaxa svo skjótt er tíminn líður og líður, líður svo undurfljótt. Litlu hendurnar mínar leikandi við svo margt fást en ekkert þó jafnast á við er hendurnar mínar, lokast um þínar og umlykja alla okkar ást. (höf.óþekktur) Hér geturðu séð hvernig veðrið er hjá mér núna Smelltu á myndina hér fyrir neðan ef þú vilt senda mömmu og pabba póst
Börn á suðurlandi |
| Þú ert gestur nr. 63542 |