18 mánaða
Vá hvað er langt síðan skrifað hefur verið í dagbókina mína. Nú ætlar mamma að reyna að standa sig aðeins betur í þessu annars verður henni sagt upp sem ritara mínum.
Nú er ég sem sagt orðinn 18 mánaða og búinn að eignast lítinn bróður sem hefur verið nefndur Nökkvi. Mér finnst hann rosalega sætur enda er ég alltaf að knúsa hann. Ég hlakka rosa til þegar hann verður eldri og við getum leikið okkur saman. Ég er að reyna að vera ekki abbó út í hann, enda eru pabbi og mamma að reyna sitt besta til að Nökkvi hafi sem minnst áhrif á mitt líf, eða svo segir mamma allavega. Við mamma reynum t.d. að gera eitthvað skemmtilegt saman þegar ég kem heim frá Rósu á daginn. Stundum förum við á róló eða út að labba og stundum fæ ég meira að segja að hjálpa henni að elda. Mér finnst SVO gaman að elda að mamma og pabbi eru alveg viss um að ég verði kokkur þegar ég verð stór. Ég veit fátt skemmtilegra en að vera inní eldhúsi með mömmu og elda eitthvað gómsætt.
Ég er farinn að segja fullt af orðum en bara eitt í einu ennþá. Þó ég sé ekki farinn að segja tvö orð í einu er ég samt farinn að syngja. Það er fínt að kunna að syngja því ef mér leiðist t.d. þegar ég á að fara að sofa á kvöldin þá get ég bara sungið mig í svefn. Núna kann ég "Allir krakkar" og "Gamla Nóa" en þetta eru lögin sem Rósa dagmamma syngur mest fyrir okkur.
Jæja fínt í bili, skrifum fljótlega aftur.
Veigar Elí Stóri bróðir
Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag.....
Nú er ég loksins orðinn eins árs og hættu að telja í mánuðum og farinn að telja í árum. Annars er það ekkert "loksins" því þessi tími er búinn að vera voðalega fljótur að líða. Af okkur er annars allt gott að frétta. Mamma útskrifaðist um síðustu helgi og er nú orðin viðskiptafræðingur og nú stendur hún í því að leita sér að vinnu. Mér finnst alveg ágætt að hún sé ekkert að vinna, því þá sækir hún mig alltaf snemma til Rósu dagmömmu. Annars er mér alltaf að líka betur og betur að vera hjá Rósu en það er nú samt alltaf skemmtilegast þegar mamma kemur að sækja mig og við förum út að labba eða gera eitthvað skemmtilegt þangað til við sækjum pabba í vinnuna.
Um síðustu helgi þegar mamma útskrifaðist voru allir afar mínir og ömmur hjá okkur. Það fannst mér rosa gaman því það er ekki svo oft sem þau eru öll í einu hjá mér. Ég gekk um og sýndi fólkinu hvað ég er orðinn stór ef mér fannst stuðið eitthvað vera að detta niður og svo að sjálfsögðu klappaði ég fyrir sjálfum mér sem endaði með því að allir tóku undir. Mamma hefur miklar áhyggjur af því að ég verði algjört dekur barn því ég á svo marga afa og ömmur sem vilja allt fyrir mig gera. En það verður bara að hafa það.
Bestu kveðjur
Veigar Elí afmælisbarn
Veigar veikjustustrákur
Nú er ég rétt að stíga upp úr flensu. Þegar mamma náði í mig til Rósu dagmömmu á miðvikudaginn var ég kominn með rúmlega 39 stiga hita. Á föstudaginn fórum við svo til læknis því þá var ég ennþá með rúmlega 39 stiga hita og þá kom í ljós að ég er kominn með í eyrun. Reyndar er þetta bara "roði" ennþá og við skulum bara vona að hann hverfi og láti ekki sjá sig aftur eftir að pensilín töku lýkur. Mamma ætlar að hafa mig heima á morgun líka þó ég sé búinn að vera hita laus í þrjá daga. Hún er hvort eð er heima og ætlar bara að láta mér batna almenninlega svo ég verði til í hvað sem er.
Á morgun ætla tvær systur að koma og leika við mig. Þær búa í næsta stigagangi og eiga kannski að passa mig af og til í framhaldinu ef okkur líkar vel hvert við annað. Það verður mjög þægilegt fyrir pabba og mömmu að hringja bara í næsta stigagang ef þau vilja skreppa í bíó eða eitthvað.
Góða nótt
Veigar Elí sem er næstum orðinn eins árs
HÆbbs
Jæja, nú er mamma loksins búin með ritgerðina sína og í tilefni þess vorum við fjölskyldan bara að slæpast um helgina. Við fórum í sund og Smáralind og heimsóknir. Mér finnst alltaf jafn gaman í sundi og er alltaf að æfa mig að fara í kaf og reyna að skvetta sem allra mestu vatni framan í pabba og mömmu. Mamma ætlaði reyndar að fara að troða einhverjum armkútum á mig og mér leist nú ekkert á það, enda rúllaði ég alltaf á bakið þegar hún sleppti mér.
Seinni partinn í síðustu viku var ég bara góður hjá Rósu dagmömmu, í fyrsta skiptið. Ég sem sagt grenjaði nánast ekkert og var bara inn í dótaherbergi að leika mér. Við skulum bara vona að þetta sé að koma núna... ég er nefnilega orðinn ansi þreyttu á að grenja alltaf hjá henni. Mér fannst líka bara miklu skemmtilegra þegar ég var að leika mér.
Bless í bili
Ég er heima í dag
Rósa dagmamma er veik í dag þannig að ég fæ að vera heima hjá mömmu. Reyndar ætlar pabbi að koma heim þegar ég vakna svo að mamma geti haldið áfram með ritgerðina sína. Það er ekki sjens að ég leyfi mömmu að pikka á tölvuna og skilja mig útundan.... mér finnst nefnilega rosalega gaman að hamra á lyklaborðið og sjá svo eitthvað gerast á tölvuskjánum.
Að því að við mamma vorum heima í morgun buðum við Kristínu og Matthildi í kaffi til okkar. Það er svo langt síðan ég hef séð Matthildi vinkonu mína að ég vildi bara alltaf vera að knúsa hana. Henni fannst nú alveg nóg um og reyndi bara að flýja mig. Mamma sagðist nú alveg skilja það því ég væri soddan fantur. Það er nefnilega þannig að þegar ég ætla að vera góður þá þarf ég náttlega að halda mér einvhersstaðar í og er ekki hárið best til þess...eða hvað?. Ég verð að fara að ná betri tækni þegar ég knúsa stelpurnar svo þær flýji mig ekki alltaf?!?!?
Jæja nú fer ég að sofa þannig að mamma þarf að nýta tímann vel.
Kveðja Veigar Elí knúsukall
Fyrstu skrefin
Nú er ég orðinn 10 mánaða og er búinn að taka fyrstu skrefin mín. Ég gerði það reynda um jólin á Akureyri hjá afa og ömmu en síðan þá hef ég heil mikið bætt mig. Það sem skemmir alltaf fyrir mér er að ég er alltaf farinn að fagna þessum glæsta árangri með því að skella uppúr og yfirleitt baða út höndunum sem að lokum veldur því að ég dett. Ég er bara svo æstur, ég bara verð að byrja að fagna tímanlega....hihihihihi.....
Nú er ég byrjaður hjá nýrri dagmömmu, henni Rósu. Í dag var bara þriðji dagurinn minn þannig að ég er ennþá að venjast. Rósa á hund sem mér líst rosaleg vel á, mér finnst hann eiginlega miklu skemmtilegri en hin börnin. Ég er alltaf að reyna að leika við hann en hann bara flýr alltaf.....ég skil ekkert í þessu.
Ég er kominn með sex tennur, báðar framtennurnar bæði uppi og niðri og báðar augntennurnar uppi. Já, þær komu seint en koma þá bara allar í einu sem er svo sem ágætt. Ég hef líka ekkert verið að láta pabba og mömmu vita neitt of mikið af þessari tanntöku þannig að þetta hefur ekkert bitnað á þeim.
Ég verð nú að segja ykkur eitt. Ég var svo duglegur að sofa um jólin að það var alveg ótrúlegt. Ég svaf svona að meðaltali 14 tíma á hverri nóttu. Ég fór alltaf að sofa kl 7 og vaknaði yfirleitt ekki fyrr á milli níu og tíu morguninn eftir. Pabbi og mamma voru að sjálfsögðu mjög ánægð með mig. Núna þarf ég bara að fara að sofa kl 6 til að ná allavega 13 tímum á nóttu því ég þarf að vakna klukkan svona rúmlega 7 til að fara til Rósu.
Bæ í bili
Veigar Elí sem fagnar alltaf of fljótt
Lítill ferðalangur
Nú er ég kominn heim frá afa og ömmu á Akureyri, búinn að vera hjá þeim í heila viku. Ég fór í fjós og við fórum í kaupstaðarferð og hittum vini og vandamenn. En skemmtilegast af öllu þótt mér þó að elda með ömmu. Já, ég er með mikinn áhuga á eldamennsku, þá aðallega því sem gerist á eldavélinni og í bakarofninum þ.e.a.s öllu því sem er heitt og gef ég það til kynna með ákveðnu hljóði, úúúúúúúhhhhhhhhfffffff. Pabbi og mamma ætluðu að láta mig opna nokkra pakka fyrir mat á aðfangadag (því ég fór að sofa áður en jólamaturinn var borinn á borð) en mér fannst þessir svo kölluðu pakkar ekkert spennandi ég vildi sko bara vera í eldhúsinu að hjálpa til.
Á annan í jólum vorum ég og amma að bralla ýmislegt skemmtilegt saman á meðan mamma og pabbi og Egill frændi og Gústi stóri frændi fóru á snjóbretti. Ég er víst of lítill ennþá til að fara á snjóbretti og líka of lítill til að vera á snjósleðanum en ég hlakka mikið til þegar ég get farið á þessi tæki með mömmu og pabba.
Nú er ég kominn heim en það verður stutt stopp því í fyrramálið fer ég til afa og ömmu í Eyjum og verð þar í nokkra daga. Þetta er nú meira ferðalagið á manni þessa daga.
Best að fara að sofa og safna kröftum fyrir næsta ferðalag. Góða nótt.
Veigar Elí Íslands-horna-flakkari
Jólasveinar einn og átta....
Nú líður að jólum og ég er búinn að fara á fyrsta jólaballið mitt. Ég sá tvo jólasveina og með þeim voru einhverjar tvær ljótar verur.... mamma sagði mér að þetta væru grýla og leppalúði.... þó mér fyndist þær ljótar þá var ég samt ekkert hræddur. Við sungum jólalög hástöfum með Siggu Beinteins og dönsuðum í kringum jólatréð... þetta var rosa gaman.
Nú er mamma loksins búin í prófunum og á bara eftir að klára B.s ritgerðina sína. Hún þarf ekki að skila henni fyrr en í lok jan svo það er óþarfi að stressa sig. Eftir að mamma kláraði prófin erum við fjölskyldan bara búin að vera að spóka okkur og reyna að komast í jólaskap. Við erum búin að fara í sund, kaffihús, Kringluna og í heimsóknir. Þetta er búið að vera voða gaman enda erum við öll komin í dúndur jólaskap.
Á laugardaginn næsta förum við til afa og ömmu á Akureyri og ætlum að vera þar í heila viku. Svo komum við heim og förum til afa og ömmu í Eyjum í heila viku líka. Þetta verður nú meira ferðalagið svona yfir hátíðirnar. En það er nú nauðsynlegt að hitta fjölskyldurnar um jólin.
Nú eru sko tímamót í mínu lífi.... ójá... ég er hættur á brjósti. Ég var orðinn svolítið latur að drekka og mömmu fannst þetta alveg orðið nóg þannig að við ákváðum í sameiningu að ég mundi bara hætta núna. Mamma hlakkar líka til að geta sofið út um jólin og látið æsta ættingja vakna með mér. Þá þarf hún ekkert að vakna með mér til að gefa mér að drekka.
Jæja best ég taki dúrinn minn, því ég og mamma ætlum svo í Kringluna og kaupa síðustu jólagjafirnar.
Jólakveðja Veigar Elí
Reynslunni ríkari
Nú er ég loksins að verða hress eftir þessi veikindi. Á föstudaginn síðasta var ég með 40 stiga hita, pabba og mömmu leist ekkert á þetta og drifu sig með mig til læknis þvi ég lá bara í rúminu og horfði útí loftið. Þetta fannst þeim frekar einkennilegt því ligg sko yfirleitt ekki kyrr í eina sekundu. En við vorum bara send heim með þá vitneskju að ég væri með flensu. Sem betur fer var hitinn farinn á sunnudaginn en ég var samt slappur og svo fékk ég hálsbólgu iu ofaná lag. Þessi hálsbólga vakti mikla kátínu því ég missti röddina. Þegar ég ætlaði að segja eitthvað eða bara grenja þá var ég rámur eins og gamall karl.
Ekki nóg með það að ég hafi verið veikur heldur er pabbi núna veikur. Hann lítur ekkert voða vel út greyið. Nú er mamma orðin frekar stressuð því hún á að fara í próf á þriðjudaginn og fimmtudaginn næsta og má því alls ekki verða veik. Ef hún missir af þessum prófum getur hún ekki útskrifast fyrr en í október og mamma er sko ekki hin þolinmóðasta í heimi hér.
Jæja verð að leyfa mömmu að fara að læra.
Veigar fríski
Veikur í fyrsta skiptið
Jæja nú er ég búinn að ná þeim merka áfanga að verða veikur í fyrsta skiptið. Ég ældi tvisvar í nótt og losaði svo hressilega hina leiðina að það fór lengst upp á bak. Mamma og pabbi þurftu sem sé að standa í stórræðum í nótt og skipta tvisvar á rúminu mínu. Núna líður mér samt miklu betur því ég er búinn að fá að drekka hjá mömmu og svo fékk ég einn stíl. Nú er ég að fara að sofa og ætli ég reyni ekki bara að sofa sem allra lengst svo ég vakni kannski frískur. Mamma segir nefnilega að svefninn lagi allt.
Dagurinn í dag átti að vera síðasti dagurinn hjá Öllu dagmömmu, en í staðinn verð ég bara heima hjá mömmu fram að hádegi og svo ætlar pabbi að koma heim eftir hádegi svo mamma geti farið í síðasta tímann í skólanum.
Ég er búinn að fá nýja dagmömmu í janúar. Hún heitir Rósa og er vinkona Öllu. Ég hef hitt hana á hverjum degi síðan ég byrjaði hjá Öllu því þær fara saman út á róló á hverjum degi. Það verður gott að þurfa ekki að kynnast annarri dagmömmu alveg uppá nýtt.
Best að fara að sofa svo ég verði frískur.
Veigar lasarus
Veigar Elí hurðaskellir
Já, nú er búinn að fatta hurðir. Þær eru ekkert smá sniðugar, hægt er að sveifla þeim fram og til baka og svo ef maður sveiflar pínu hratt og sleppir þá lokast þær og framkalla háan skell. Pabbi og mamma eru verulega hrædd um að nú eigi ég eftir að klemma mig rækilega en það hefur sloppið hingað til. Reyndar varð smá slys, þegar ég var að sveifla hurðinni til þurfti ég aðeins að styðja mig við gólfið og þá sveiflaðist hún ofan á hendina og ég klemmdist smá. En það var nú ekki alvarlegt.
Ég er farinn að segja mammmaammma og daddadddaaa. Mamma verður alltaf svo glöð þegar ég segi þetta. Ég veit ekkert hvað þetta þýðir mér finnst þetta bara cool orð og ef ég vil gera mömmu glaða þá veit ég hvað ég á að segja.
Jæja ég verð að drífa mig í rúmið, ég verð að fá mína tólf tíma áður en ég fer til Öllu dagmömmu.
Góða nótt, Veigar hurðaskellir
Veigar tannálfur 2
Nú er tönn nr. 2 komin í ljós þanngi að núna er ég kominn með báðar framtennurnar í neðri góm.
Nú er bara ein vika eftir hjá Öllu dagmömmu. Mér finnst það pínu leiðinlegt því mér líkar svo vel hjá henni. Hún á eina kisu sem ég er alltaf að skoða og svo finnst mér líka gaman að leika við hina krakkana. Við förum alltaf út á hverjum degi, stundum á róló. Þá fæ ég bæði að róla og stija í sandkassanum.
Pabbi ætlar að vera heima hjá mér í desember á meðan mamma fer í síðustu prófin sín í Háskóla Íslands. Það verður sko gaman. Ég ætla að láta pabba lesa fyrir mig því mér finnst svo gaman þegar lesið er fyrir mig. Ætli við förum síðan ekki í nokkra göngutúra.... mér finnst það nokkuð líklegt.
Nú ætla ég að kveðja í bili
Veigar tannálfur 2
Veigar tannálfur
Jæja, loksins lét fyrsta tönnin sjá sig. Við vorum hjá ömmu og afa á Akureyri um helgina þegar ósköpin dundu yfir, reyndar voru þetta nú engin ósköp því pabbi að mamma vissu ekki af þessu ég fór svo leynt með þetta. Kannski var það svala og hreina sveitaloftið. Við skulum bara vona að næstu tennur komi líka svona hljóðlega.
Það var rosa gaman á Akureyri, við fórum í fjósið og kíktum á kálfana og kisuna og fórum út að labba. Mér fannst svo gott að sofa í sveitinni að ég svaf í 13 klukkutíma, aleinn í herbergi. Pabbi og mamma voru rosa glöð.
Nú ætla að ég að fara að sofa.... það tekur á að keyra á milli Ak og Reykjavíkur. Góða nótt.
Veigar Elí sem kominn er með eina tönn
8 mán í dag og eitt skref til sjálfsstæðis
Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag........og er byrjaður hjá dagmömmu. Ó já, nú fer ég til dagmömmu frá 8-14 á hverjum degi svo mamma geti lært eitthvað. Mamma náði reyndar snemma í mig í gær og í dag af því að þetta eru fyrstu dagarnir.... en þetta er nú minnsta málið. Ég hitti fullt af krökkum og get leikið mér með fullt af nýju dóti.
Á sunnudagsmorguninn síðasta fórum ég og mamma og pabbi heimsókn og hittum vinkonur mömmu úr skólanum og alla krakkana þeirra.... það var nú heldur betur súpan. Bara á þessu ári eru búin að fæðast 5 og eitt er ennþá í bumbunni. Það koma fljótlega myndir úr partýinu.
Bless í bili, Veigar Elí
Allt er á tjá og tundri....
Síðan ég byrjaði að standa upp í rúminu mínu hef ég sko aldeilis tekið framförum. Ég er alltaf að slá hraðamet í að standa upp og það ekki bara í rúminu mínu heldur líka bara upp við hvað sem er. Í barnapössuninni í morgun í Þrekhúsinu stóð ég upp við dótakassann þegar alltí einu fæturnir byrjuðu að renna til hliðar og svo allt í einu "bang" datt ég. Mamma var að segja við pabba í gær að nú færi að koma kúlu-tímabil.... ég veit ekki alveg hvað hún átti við með því. Nú get ég líka verið duglegri við að hjálpa mömmu að taka til þegar ég er farinn að standa svona mikið, þá næ ég líka hærra upp.
Í nótt svaf ég í fyrsta skiptið í mínu herbergi. Það var bara fínt, ég svaf bara eins og venjulega. Ég skil samt ekki af hverju ég þarf að sofa einn. En svona er lífið.
Jæja ætli sé ekki best að ég taki blundinn minn.
Veigar skæruliði