Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Hinrik Dagur
Hinrik Dagur

4. febrúar 2012

Fjölskyldan er flutt til Svíþjóðar. Í byrjun ágúst vöknuðum við um miðja nótt til að fara á flugvellinn.  Ferðin gekk í rauninni vel. Krakkarnir voru mjög dugleg. Hjördís Lind var reyndar mjög þreytt í flugvélinni og sofnaði eins og skot þegar hún fékk vagninn sinn á flugvellinum í Stokkhólmi. Hinrik Dagur var mjög spenntur yfir öllu saman, reyndar svo spenntur að hann borðaði nánast ekki neitt allan daginn. Hann var orðinn mjög orkulaus og þreyttur þegar við vorum komin út, en samt alveg svakalega duglegur og hjálpaði til við að draga töskurnar. Hjólið datt undan einni töskunni þannig að hann þurfti að draga eina eða keyra vagninn hennar Hjördísar Lindar. Við vorum alveg svakalega kát þegar við komum loksins í litla kotið okkar. Krakkarnir gerðu sér að góðu að sofa á sófapullunum inni í hjónaherbergi í viku á meðan við biðum eftir dótinu okkar úr skipinu. Fyrsti mánuðurinn fór í að koma sér fyrir og venjast nýjum aðstæðum. Það tók dáldinn tíma að koma matarlistinni aftur í hann en að öðru leyti var hann fljótur að aðlagast og var mjög kátur með umhverfið og húsið. Hjördís Lind þurfti dáldið að venjast nýju húsi. Skólinn hans Hinriks Dags er alveg frábær, Stimmets skola. Hann er  búinn að vera svo duglegur, algjör hetja. Hann þekkti náttúrulega engann og skildi ekki stakt orð. Samt var allt svo spennandi og skemmtilegt. Til að byrja með var eins og hann frysi, það fór ekkert inn af nýja tungumálinu. En svo eftir c.a. mánuð þá fór hann að meðtaka nýja málið og c.a. 2-3 mánuðum eftir að hann fór í skólann var hann farinn að hlægja og leika sér með hinum Svíjunum. Hann spilar fótbolta og handbolta og er búinn að eignast fullt af vinum þar. Hann virðist eiga meira sameiginlegt með þeim þó að honum líki alveg vel í skólanum. Flestir þessara íþróttastráka eru í öðrum skóla og erum við að spá í að leyfa honum að fara í hann í staðinn.  Hjördís Lind er mjög hrifin af leikskólanum sínum, Diamenten heiti hann. Hún er sérlega hrifin af konu sem heitir Camilla. Yfirleytt er hún mjög kát að fara í leikskólan þó að það hafi komið smá afturkippur eftir jólafríið. Aðlögunin gekk mjög vel. Hún tók langan tíma og vorum við Steinn hjá henni minnir mig í meira en viku. Því miður á að loka þessum litla sæta  leikskóla þannig að hún þarf að fara eitthvert annað næsta haust. Húsið okkar er alveg yndislegt og okkur fannst strax við ættum heima þar. Fyrir utan er lítill róló og húsið liggur við skóg og vatn, Öringesjön. Vatnið og skógurinn er alveg yndislegt. Við höfum oft farið í litlar skógarferðir og oft farið niður að kletti eða út á litla strönd
sem heitir Öringestrand. Þau hafa bæði prufað að busla í vatninu og núna um daginn fórum við á skauta. Náttúran er yndisleg og veðrið ljúft og milt. Þó við söknum vina og fjölskyldumeðlima þá er líka yndislegt að vera út af fyrir sig og njóta félagsskapar hvors annars. Við reynum að hjálpa hvort öðru í því sem við tökum okkur fyrir hendi til að allt gangi betur. Þessi reynsla hefur þjappað okkur meira saman sem fjölskylda.

Kveðja,
Bríet.

0 | 4.2.2012 15:43:22 #

Sveitin

Nú erum við flutt í sveitina, búslóðin er komin í skip og nýjir íbúar í Frostafoldina. Hinrik Dagur tók virkan þátt í flutningunum. Hann fékk að vera með afa sínum í stóra vörubílnum hans Óla þegar búslóðin var flutt niður á höfn. Það var mikið sport að gista þegar við vorum að tæma íbúðina, hann svaf á pínulítilli dýnu úr rimlarúmi og allt fullt af pappakössum í herberginu. Í sömu viku og við fluttum fékk hann að vera með bikarinn sem hann og hans lið unnu á Norðurálsmótinu. Það var mikil hamingja, eitt sinn sagði hann mér að hann mundi gráta af gleði ef hann mundi vinna bikar á mótinu. Það rættist reyndar ekki en hann var afar kátur og gerði sitt allra besta að sýna sem flestum verðlaunagripinn. Hinrik Dagur er búinn að vera duglegur að vera með vinum sínum í sumar. Hann er samt mjög kátur í sveitinni þar sem hann fær að vera með frændum sínum í heyskap. Hann fer sjálfur niður í Súluholt og kemur ekki heim í Skyggnisholt fyrr en á kvöldin. Um daginn fékk hann Matthías í heimsókn til sín í sveitina yfir nótt. Það var alveg frábært, þeir voru svo ljúfir og góðir saman. Í gær kom svo öll fjölskyldan, Sara og co, í heimsókn og var mikil kátína á bæ. Í dag fór hann í afmæli til Arndísar og Hildar Emblu. Honum finnst mjög gaman að hitta frændsystkin sín og vini sína, mikil félagsvera.

Kveðja,

Bríet.

0 | 17.7.2011 23:33:46 #

Hinrik Dagur er mjög ljúfur og vel gerður strákur. Hann er alveg jafn yndislegur stóri bróðir og ég hélt að hann yrði. Hann passar svo mikið upp á hana. Oft leiðbeinir hann ömmu og afa í sveitinni þegar þau eru í pössun þar. Um daginn fórum við saman á róló og hann vildi endilega fara á undan og leiða Hjördísi Lind. Um daginn datt Hjördís Lind niður af litla brúna borðinu og fékk ég heilmiklar skammir frá Hinriki Degi því hann hafði OFT talað um að hún mætti ekki príla þarna. Hinrik Dagur hefur líka mjög gaman af því að leika við hana, þau dunda sér oft saman í langan tíma. Hann fær mikinn félagsskap af henni. Honum finnst hún líka vera fyndin, ef hún segir eitthvað skrítin hljóð eða gerir eitthvað skondið fær hann mikið út úr því.

Um daginn fóru krakkarnir og Steinn í fjöruferð. Þar voru nokkrir menn með kajaka. Hinrik Dagur var ægilega spenntur fyrir að fá að prófa. En hann byrjaði á því að spyrja Stein hvort hann mætti spyrja mannin hvort hann mætti prufa. Svo fór hann sjálfur til eiganda bátsins, og fékk að sjálfsögðu að prófa að sigla.

Honum finnst mikið til koma teiknihæfileikar mömmu sinnar. Hann fann eldgamlar teikningar upp á lofti, síðan ég var í barnaskóla og fjölbrautarskóla. Honum fannst það alveg svakalega fínt. Þegar kom að dótadegi í skólanum hans vildi hann ekki fara með neitt dót eða fótboltamyndir, heldur listaverk frá mér. Og það gerði hann. Þau voru hengd upp á vegg í skólanum. Ég fékk svo spurningu frá vini hans hvort ég væri konan sem væri best í að teikna. Núna eru fínustu teikningarnar hans útfærslur á einu "verki" sem ég gerði. Ég fékk m.a. svoleiðis í afmælisgjöf. Svo fékk ég líka uppskrifta og verkefnabókina hans úr matreiðslu. Ég var búin að hrósa honum svo fyrir það sem hann hefur komið með úr matreiðslu. Einnig fékk ég frá honum morgunmat í rúmið, eitt brauð með eggi og annað með súkkulaði, kex og mjólk. Alveg yndislegt:-)

Kveðja, Bríet.

24.05.2011

0 | 24.5.2011 10:17:53 #

Til hamingju með daginn :o)
Margrét Harpa | 0 | 17.3.2011 05:53:50 #
Hinrik Dagur og mamman eru að spjalla saman fyrir svefninn og að hlusta á sálmana sem Ellen Kristjánsdóttir syngur. Þar kemur lagið 'Ó Jesú bróðir besti'. 'Mamma, manstu þegar ég söng þetta lag?' Já sagði ég, það var í skírninni hennar Hjördísar Lindar. 'Já, thíhíhí, ég var algjör kanína!' segir Hinrik Dagur og flissar og felur sig hálfur undir sænginni.
Þegar Hinrik Dagur er feiminn segji ég stundum að hann sé héri eða sé með héraskap.
Kv. Bríet. 28. febrúar 2011.
0 | 28.2.2011 20:52:39 #

Jólin og áramótin voru dálítið sérstök fyrir Hinrik Dag og okkur öll í þetta skiptið. Ælupest og niðurgangur setti sitt strik á hátíðarnar, frá því fyrir jól og fram yfir áramót. Hinrik Dagur varð veikur á aðfangadag, grét af magaverk þegar klukkan sló 6. En hresstist aðeins þegar kom að því að taka upp pakkana. Svo ældi hann um nóttina. Við bættum við nýrri venju að uppástungu Hinriks Dags, að dansa og syngja í kringum jólatréð. Það var mikil jólastemmning í því og vona ég að við munum halda áfram þeim sið. Hinrik Dagur sótti pakkana undan trénu að venju, en fékk góða hjálp frá litlu systur sinni. Hann var rosalega ánægður með gjafirnar sínar, þó sérstaklega útvarpið og geislaspilarann frá mömmu og pabba og tvöfalda geislasverðið frá afa og ömmu í Skyggnisholti. Jólalögin voru að sjálfsögðu sett á nýja fína geislaspilarann strax á aðfangadagskvöldi. Hinrik Dagur var lasinn fram að áramótum þannig að við fórum ekki austur fyrr en á öðrum degi jóla og komum heim daginn eftir. Um áramótinn var hann sem betur fer orðinn mikið hressari. Hann fór á brennu með pabba sínum um kvöldið og þeir löbbuðu aðeins um hverfið þegar sprengingarnar voru sem mestar. Í fyrsta skipti á tæplega 8 ára langir æfi sinni vakti hann fram yfir miðnætti á áramótunum. Hann var alveg að sofna í sófanum yfir áramótaskaupinu en við náðum bókstaflega að draga hann á lappir til að sjá flugeldana. Áramótin voru eiginlega betri en jólin fyrir Hinrik Dag þetta árið.

0 | 6.2.2011 15:02:03 #

Ég gerði samning við pabba í gær. Hann drekkur svo mikið Coca Cola sem er mjög óhollt. Við gerðum samning þannig að hann þarf að gefa mér ís í hvert skipti sem ég sé hann drekka kók.

Þegar hann vaknað svo í morgun var glas fullt af cola og á því miði sem sagði að þetta væri handa honum. Þess fyrir utan gerð ég samning við mömmu um að láta mig vita og bera vitni um ef hún sæi pabba drekka kók.

0 | 19.1.2011 13:18:10 #

Hinrik Dagur segir fyrir svefninn: Mér finnst Guð vera fallegur út af því að hann er úr gulli. Í staðinn fyrir andlitslitaðan er gull. Og hann passar okkur líka.
Ég útskýrði hvað „helgist þitt nafn þýðir“ í faðirvorinu, að maður mætti ekki gera grín að nafninu hans eða segja eitthvað ljótt með því.
0 | 1.12.2010 20:57:11 #

Veturinn 2010, eftir jól

0 | 0 | 8.9.2010 12:05:50 #

Sumarið 2010 - Hinrik Dagur

0 | 0 | 7.9.2010 17:16:37 #

Útileiga Þingvöllum

0 | 0 | 7.9.2010 16:43:31 #

Gönguferð á Úlfarsfell

0 | 0 | 7.9.2010 15:52:28 #

Sumarbústaðarferð á Egilsstaði

0 | 0 | 7.9.2010 14:38:23 #

Hinrik Dagur er byrjaður í fótboltaskóla. Hann er allt fyrir hádegið, voða duglegur. Reyndar tognaði hann í gær, að hans sögn. Var dáldið lumpinn þegar ég kom og sótti hann. Sagði að hann hefði dottið og fóturinn snúist í þrjá hringi. En hann var orðinn fínn daginn eftir:-)

0 | 13.7.2010 12:12:26 #

Saga sem Hinrik Dagur sagði í Regnbogalandi, Frístundaheimilinu þegar Sögubíllinn kom í heimsókn:

Hinrik njósnari!
Einu sinni var kona sem fæddi lítinn strák. Þegar strákurinn stækkaði varð hann njósnari. Hann hét Hinrik!  Hann njósnaði bæði um fólk og dýr Hann átti kærustu sem hét Guðrún og hann var alltaf að njósna um hana.  Hann var nefnilega svo skotinn í henni.  Þau kysstust mjög oft.  Stundum njósnaði hann fyrir kónginn og var kóngurinn mjög ánægður með hann.

0 | 12.5.2010 17:31:10 #

Ég er orðinn sjö ára og 125 cm. Nú er þriðji í afmæli búinn. Fjölskyldan og nokkri vinir komu til okkar í veislu. Mamma var búin að gera afmælisköku með Bardelona-merkinu, svakalega flott. Það var svaka stuð hjá okkur krökkunum að leika saman, við lokuðum bara að okkur og lögðum allt (hvert einasta snifsi) undir okkur í herberginu mínu. Mamma ætlar að reyna að komast að því hvað ég fékk í afmælisgjöf á morgun, þegar hún verður búin að grafa sig í gegnum dótið. Ég fékk reyndar nýjan Henson galla og Adidasbol frá Hjördísi ömmu og Guðjóni afa, nýtt 'risastórt' pennaveski og bók frá Rúnu ömmu, bók frá Gumma frænda og reyndar líka frá Dísu ömmu og Söru og co. Ég fékk líka nýar nærur og kúrekahatt frá þeim. Frá Rúnari og Mæju fékk ég inniskó, pening frá Hafliða afa. Einhver gaf mér Animalfarm á dvd og Lego. Þetta kemur allt í ljós. Ég var allavega mjög ánægður með daginn minn. Já, og á sjálfan afmælisdaginn minn gaf litla systir mín mér lítinn engil og hjartalaga nammi. Afmælisdagurinn var líka mjög skemmtilegur, þá fórum við pabbi í bíó að sjá Alvin og íkornana, og ég fékk svakalega mikið nammi. Afi og amma í Skyggisholti komu í heimsókn og gáfu mér pakkann. Svo fékk ég kakósúpu í kvöldmat. Daginn eftir hélt ég svo upp á afmælið fyrir vini mína í skólanum. Við fórum í leikjalandið í Smáralind og lékum okkur svakalega. Þar voru rennibrautir, boltaland og trampolín. Ég elska trampolín! Allir strákarnir úr báðum bekkjunum komu, og þrjár vinkonur mínar þær Jenný, Guðrún og Hrafnhildur. Mamma bjó til afmælisköku sem leit út eins og fótbolti. Það var alveg brjálað stuð á öllum og margir fóru rennsveittir og þreyttir heim.

Það er ekkert lítið mál að verða sjö ára, og ég tek það sko með trompi!

Kveðja, Hinrik Dagur.

0 | 21.3.2010 21:27:41 #

Hinrik Dagur og mamman spjalla smá saman og knúsast fyrir svefninn. Mamman segir, 'ég elska þig voða voða mikið, meira en til stjarnanna'. Hinrik Dagur svarar 'og ég elska þig meira en til síðustu plánetunnar, lengra en geimurinn'. 'En hvað er þar, þar sem geimurinn endar?' 'Ég veit það ekki', svarar hann. 'Örugglega fullt af fótboltaspilum'. Það er ekki verri skýring en hver önnur, eða hvað?
Kveðja, Bríet.
21. mars 2010
0 | 21.3.2010 21:24:26 #

Ég á afmæli á morgun og ég get ekki beðið. Ég vaknaði fyrstur í morgun og var búinn að teikna blöðru sem á stóð "7 ára" og skrifa við hliðina "eftir 1 dag" þegar gamla settið fór á fætur.

0 | 16.3.2010 13:15:59 #

Hinrik Dagur fór á sína fyrstu fótboltaæfingu fyrir fáeinum dögum.  Þvílík og önnur eins gleði!  Reyndar var fyrsta æfingin bara 'pínulítið skemmtileg' því liðið hans tapaði.  En næsta æfing var þeim mun skemmtilegri því þá var hann í vinningsliðinu.  Það vantar ekki keppnisandann í guttann.  Það fyrsta sem hann tók eftir þegar hann kom á svæðið var að það voru allir í fótboltaskóm.  Eftir æfinguna var hann ekki sáttur með skóna sína, sagði að þeir væri 'alveg vonlausir'.  Pabbinn ákvað því að splæsa í fyrstu fótboltaskóna.  Við vorum svo heppin að fá þá á helmingsafslætti og kostuðu þeireinungins4000kr.  En, glæsilegir eru þeir.  Það sem eftir lifði dags fór Hinrik Dagur ekki úr skónum sínum.  Hann fór í fótbolta með pabba sínum þegar við komum heim, og fór ekki úr þeim það sem eftir lifði dags.  Mamman var búin að segja honum að þetta væru ekki skór til að vera í úti að leika.  Þegar vinur hans, hann Þórður, kom í heimsókn og spurði hvort Hinrik Dagur væri til í að leika úti, þá sagði stráksi bara nei.  Hann vildi ekki fara út.  Mömmunni grunaði hvers kyns væri og sagði að það væri nú kannski í lagi einu sinni að fara út að leika í nýju skónum.  Litla andlitið var ein sól í framan og sagði hann 'takk mamma' með voða mikilli hlýju í röddinni.  Svo var farið út að leika í flottustu fótboltaskóm á landinu. 

Bríet.

 

0 | 14.3.2010 18:56:02 #

Ég fór í gönguferð í dag með pabba. Ég vildi fyrst ekki fara af því að ég átti nammi og vildi frekar vera í tölvunni eða horfa á sjónvarpið. En á endanum kom mamma mér út og við pabbi fórum í gönguferð upp Esjuna. Ég vissi ekki að það yrði svona gaman en það var rigning og lækir út um allt. Lækir er eitthvað sem mér finnst gaman og fóru ófáir steinarnir ofaní lækina og ekki þurfti að gera ráð fyrir því að ég kæmi þurr á fótunum heim. Það endaði með því að þegar ég kom aftur niður eftir að hafa farið upp hálfa hlíðina að ég var svo blautur og drullugur að ég þurfti að sitja á nærbuxunum í bílnum á leiðinni heim.

Reyndar lenti ég í smá Wipeout í Esjunni. Málið var að á kafla var svo mikil drulla á göngustígnum að ég datt tvisvar á rassinn og pabbi rétt náði að forða sjálfum sér frá falli. Greinilega um Wipeout að ræða þarna því drullan og vatnið gaf það skýrt til kynna. Þá fann ég hveralykt en fann enga hveri. Við skoðuðum meira að segja öll landakort sem við fundum niðri við fjallsræturnar en ekkert var þar skrifað um hveri.

Í sumar ætla ég að fara alla leið upp á topp.

0 | 14.3.2010 18:50:31 #