4. febrúar 2012
Fjölskyldan er flutt til Svíþjóðar. Í byrjun ágúst vöknuðum við um miðja nótt til að fara á flugvellinn. Ferðin gekk í rauninni vel. Krakkarnir voru mjög dugleg. Hjördís Lind var reyndar mjög þreytt í flugvélinni og sofnaði eins og skot þegar hún fékk vagninn sinn á flugvellinum í Stokkhólmi. Hinrik Dagur var mjög spenntur yfir öllu saman, reyndar svo spenntur að hann borðaði nánast ekki neitt allan daginn. Hann var orðinn mjög orkulaus og þreyttur þegar við vorum komin út, en samt alveg svakalega duglegur og hjálpaði til við að draga töskurnar. Hjólið datt undan einni töskunni þannig að hann þurfti að draga eina eða keyra vagninn hennar Hjördísar Lindar. Við vorum alveg svakalega kát þegar við komum loksins í litla kotið okkar. Krakkarnir gerðu sér að góðu að sofa á sófapullunum inni í hjónaherbergi í viku á meðan við biðum eftir dótinu okkar úr skipinu. Fyrsti mánuðurinn fór í að koma sér fyrir og venjast nýjum aðstæðum. Það tók dáldinn tíma að koma matarlistinni aftur í hann en að öðru leyti var hann fljótur að aðlagast og var mjög kátur með umhverfið og húsið. Hjördís Lind þurfti dáldið að venjast nýju húsi. Skólinn hans Hinriks Dags er alveg frábær, Stimmets skola. Hann er búinn að vera svo duglegur, algjör hetja. Hann þekkti náttúrulega engann og skildi ekki stakt orð. Samt var allt svo spennandi og skemmtilegt. Til að byrja með var eins og hann frysi, það fór ekkert inn af nýja tungumálinu. En svo eftir c.a. mánuð þá fór hann að meðtaka nýja málið og c.a. 2-3 mánuðum eftir að hann fór í skólann var hann farinn að hlægja og leika sér með hinum Svíjunum. Hann spilar fótbolta og handbolta og er búinn að eignast fullt af vinum þar. Hann virðist eiga meira sameiginlegt með þeim þó að honum líki alveg vel í skólanum. Flestir þessara íþróttastráka eru í öðrum skóla og erum við að spá í að leyfa honum að fara í hann í staðinn. Hjördís Lind er mjög hrifin af leikskólanum sínum, Diamenten heiti hann. Hún er sérlega hrifin af konu sem heitir Camilla. Yfirleytt er hún mjög kát að fara í leikskólan þó að það hafi komið smá afturkippur eftir jólafríið. Aðlögunin gekk mjög vel. Hún tók langan tíma og vorum við Steinn hjá henni minnir mig í meira en viku. Því miður á að loka þessum litla sæta leikskóla þannig að hún þarf að fara eitthvert annað næsta haust. Húsið okkar er alveg yndislegt og okkur fannst strax við ættum heima þar. Fyrir utan er lítill róló og húsið liggur við skóg og vatn, Öringesjön. Vatnið og skógurinn er alveg yndislegt. Við höfum oft farið í litlar skógarferðir og oft farið niður að kletti eða út á litla strönd
sem heitir Öringestrand. Þau hafa bæði prufað að busla í vatninu og núna um daginn fórum við á skauta. Náttúran er yndisleg og veðrið ljúft og milt. Þó við söknum vina og fjölskyldumeðlima þá er líka yndislegt að vera út af fyrir sig og njóta félagsskapar hvors annars. Við reynum að hjálpa hvort öðru í því sem við tökum okkur fyrir hendi til að allt gangi betur. Þessi reynsla hefur þjappað okkur meira saman sem fjölskylda.
Kveðja,
Bríet.





