HÖRÐUR ÞÓR HAFSTEINSSON


UM MIG:
Ég er fæddur í Reykjavík þann 11. júlí 2000. Mamma heitir Hlín Ólafsdóttir (´80) og pabbi Hafsteinn Þór Harðarson (´78). Ég var 51 cm langur og 3605 gr. þegar ég fæddist, bláeygður og svarthærður. En smátt og smátt breyttist það, ég stækkaði (og er enn að), hárið datt af en óx sem betur fer aftur og augnliturinn breyttist. Svo nú er ég brúneygður og ljóshærður, og alveg ótrúlega sætur! Ég er alnafni afa míns í föðurætt.

Ég bý í Norðlingaholti með mömmu minni og Árna fósturpabba mínum og geng í 2. bekk í Norðlingaskóla.
Svo á ég eina litla systur, hana Matthildi Freyju.

Lilypie 6th to 18th PicLilypie 6th to 18th Ticker






VINIR OG KUNNINGJAR Á BARNALANDI:
litla systir mín

turtle
Sigrún Silja

turtle
Kristófer Daði

turtle
Eydís Ósk frænka

turtle
Bjarki Már frændi

turtle
Skúli Freyr

turtle


Sólskinsbarn

Hann er ljóshærður og laglegur
Hann er ljúfur eins og vor.
Stráir ástríku yndi
við hvert einasta spor.
Hann er elskaður af öllum,
og í athöfnum dyggur.
Hann er sólskinsbarn síglatt.
Hann er saklaus og tryggur

Til: Harðar Frá: mömmu :)

Bara í dag.....

- ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast og hlæja þegar mig langar frekar að gráta...
- ætla ég að leyfa þér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag...
- ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í, brosa og hrósa þér fyrir "fullkomna" litasamsetningu...
- ætla ég að gleyma óhreinatauinu og fara frekar með þér út á leikvöll...
- ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt...
- ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur...
- ætla ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann...
- ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór...
- ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd...
- ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til...

Bara í kvöld......

- ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum er þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...
- ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið útaf vatninu á gólfinu...
- ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...
- ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...
- ætla ég að dást af þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig...
Ég hugsa til mæðra sem hafa misst börn sín vegna veikinda eða slysa og mæðra sem dvelja á sjúkrahúsum með börnum sínum og berjast fyrir lífi þeirra. Ég er svo heppin að eiga þig og bið ekki um neitt..... nema annan dag með þér....

Þú ert gestur nr. 25633