Ég heiti Amanda Helga


Um mig:


Halló, ég heiti Amanda Helga og er 13 ára. Ég bý á Akureyri og er í Giljaskóli. Bekkurinn minn samanstendur af 6 stelpum og 13 strákum, við erum öll voða góðir vinir.

Ég á eina litla systur sem er 6 ára, hún heitir Eva Natalía. Hérna er mynd af okkur og ef þú ýtir á myndina þá lendirðu á heimasíðunni hennar. Svo á ég næstum 2 ára tvíburabræður. Þeir eru algjörir álfar enda fæddir 6 vikum fyrir tímann.



Ég á marga vini t.d. Marín (en hún er flutt til Reykjavíkur), Rakel, Sandra, Aldís Rún, Sara, Kristjana, Evíta, Hafdís, Þórdís, Ásdís, Helga, Kamilla, Heiða Hlín, Heiða Hans og Sara Hlín.
Sumarið 2004 kynntist ég Elínu, hún býr í Hollandi. Hún er besta vinkona mín.

Svo á ég vini í Reykjavík en ég hitta þá ekki mjög oft. Það eru t.d. Daníel Valur, Kata & Karen, Alexander, Alda María

Ég á líka nokkra frændur og frænkur sem eiga síður hérna ef þið viljið kíkja, það eru t.d.
Sonja,hún er 9 ára;
Erlendur hann er 7 ára;
Freysteinn Ingi bróðir Erlendar
Helena Ósk hún er 5 ára og
Andri Snær hann er 10 ára.
Hérna er svo mynd sem ég teiknaði handa Birtu, frænku minni hún er núna engill á himninum.




Ég er í áhaldafimleikum á veturna og er að reyna við 4. þrep þar. Mér finnst mjög gaman að föndra og teikna.
Á sumrin æfi ég fótbolta með Þór og finnst alveg rosalega gaman. Mér finnst líka rosalega gaman á skíðum og skautum. Ég hef líka verið í dansskóla hjá dans point studio, Urður og Iðunn eru þar með mér.






Annað:


Ljónið

23. júlí - 22. ágúst



Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.



Það má eiginlega segja að ég sé ekta ljón, enda bý ég í ljónabæli, pabbi og mamma eru bæði ljón. Við erum eiginlega alveg eins og í Lion King. Ég er svona Simbi.










Ekki fara alveg strax, viltu skrifa í gestabókina fyrst





Hér getur þú sent mömmu minni póst



Þú ert gestur nr. 19594