Glasabarn
Óskabarn foreldra minna


Um mig:
Ég var getinn með dyggri aðstoð starfsfólks Tæknifrjóvgunardeildar. Þetta var fyrsta glasafrjóvgun foreldra minna og ég var 13 merkur og 50 cm þegar ég fæddist í desember 2002. Mamma er að skrifa söguna í kringum mig og hún mun birtast á heimasíðu Tilveru, www.tilvera.is þegar hún er tilbúin. Fyrir á ég einn bróður sem kom undir á meðan mamma var á pillunni, en þá höfðu mamma og pabbi bara þekkst í eitt ár og ætluðu ekkert að eignast börn saman, alla vega ekki strax. En þegar bróðir minn var nokkurra mánaða gamall ákváðu þau að búa mig til fljótlega, en það tókst ekki fyrr en eftir tæp 3 ár. Mamma segir stundum að frjósemin hjá henni sé ýmist í ökkla eða eyra...





Annað:
Sem sjá má hef ég blandast afskaplega vel í glösunum niðr' á Tæknifrjóvgun, mömmu og pabba finnst ég alla vega svaka sætur...

Þú ert gestur nr. 17009