Netráðgjöf (e-therapy) er nýr valkostur á sviði geðheilbrigðisþjónustu sem gerir þér kleift að leita ráða hjá sérfræðingi gegnum Netið. Einn helsti kosturinn við netráðgjöf er að þú getur leitað til sérfræðings hvenær sem þér hentar.
Netráðgjöf er kærkomið tækifæri fyrir þá sem þarfnast hjálpar og stuðnings en hafa af einhverjum ástæðum ekki enn stigið það skref að leita eftir hjálp. Netráðgjöf getur gagnast þeim sem þurfa að fá svör við einföldum spurningum eða þurfa á ráðgjöf að halda vegna flóknari vandamála.
Ef þú hefur áhuga á að nýta þér þetta er fyrsta skrefið að hafa samband við sálfræðing barnalands með því að senda tölvupóst á netradgjof@barnaland.is. Þar færðu allar nánari upplýsingar ásamt greiðsluupplýsingum, en greining sálfræðings kostar kr. 5500. Greiningin er byggð á svörum þínum við spurningalistanum Fyrsta mat sem hægt er að svara með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Þú getur einnig farið beint í Fyrsta mat og svarað spurningunum og greitt eftir á. Svar sálfræðings berst ávallt innan 48 klst. eftir að greiðsla hefur borist. Öll samskipti milli þín og sálfræðings fara fram á dulkóðuðu svæði sem stenst fyllstu öryggiskröfur um rafræn samskipti.
NÝTT! Nú er hægt að greiða með kreditkorti fyrir sálfræðiráðgjöf. Allar upplýsingar veitir sálfræðingur Barnalands, sigga@frontur.com.
Sálfræðileg netráðgjöf getur að mörgu leyti gagnast jafn vel og hefðbundin samtalsmeðferð. Ráðgjöfin getur hjálpað þér ef:
Þetta eru aðeins nokkur dæmi um það hvernig netráðgjöf getur gagnast þér. Nánari upplýsingar veitir sálfræðingur Barnalands gegnum netfangið: netradgjof@barnaland.is
Áður en þú tekur ákvörðun um að nýta þér sálfræðilega netráðgjöf skaltu íhuga vel hvort netráðgjöf sé heppileg fyrir þig. Netráðgjöf hentar ekki fyrir alla. Ef þú ert í vafa er sjálfsagt að senda fyrirspurn á thorogsigga@gmail.com
Netráðgjöf er ekki heppileg fyrir þá sem eru í miðri krísu. Til eru betri leiðir til að fá hjálp við alvarlegum vandamálum.
Netráðgjöf er nýtt svið. Þeir sem nýta sér hana verða að vera meðvitaðir um kosti hennar og galla.
Til að geta nýtt þér netráðgjöf verður þú að eiga auðvelt með að skrifa um tilfinningar þínar og geta lýst aðstæðum þínum nokkuð nákvæmlega. Þetta er nauðsynlegt þar sem netráðgjöf fer fram gegnum tölvu þar sem skjólstæðingur og ráðgjafi skrifast á.
Allir sem sækja sér ráðgjöf verða að vera tilbúnir til að opna sig fyrir ráðgjafanum. Forsendan fyrir því að ráðgjöf skili árangri er að þú getir tjáð þig frjálslega um tilfinningar þínar og erfiðleika. Ef þú greinir ekki rétt frá eða sleppir út mikilvægum upplýsingum ertu ekki að nýta þér ráðgjöfina til fulls og sóa tíma og peningum.
Ef aðstæður þínar eru mjög flóknar eða þú ert að glíma við mjög alvarleg vandamál er netráðgjöf aðeins skammtímalausn. Ef ráðgjafinn metur það svo að þú þurfir meiri hjálp en hann getur veitt þér mun hann vísa þér á aðra sérfræðinga. Fyrir sumt fólk getur netráðgjöf í nokkur skipti verið nóg til að komast á réttan kjöl en fyrir aðra er nauðsynlegt að hitta ráðgjafann augliti til auglitis. Sumir netráðgjafar bjóða skjólstæðingum sínum upp á viðtöl í framhaldi af netráðgjöf.
Svar við fyrsta mati kostar kr. 5500. Ef þú hefur áhuga á að nýta þér netráðgjöf skaltu senda póst á netradgjof@barnaland.is til að fá sendar greiðsluupplýsingar. Eftir að greiðsla hefur borist má vænta svar frá sálfræðingi innan 48 klst. Nánari upplýsingar er að finna undir liðnum Hvernig fer sálfræðiráðgjöf fram? Athugið að nú er hægt að greiða með kreditkorti fyrir sálfræðiráðgjöf.
Lýsing á mynd við auglýsingu:
In this photo released by the Sigmund Freud Museum in Vienna former Austrian psychoanalyst Sigmund Freud is pictured in his working room in 1938. Austria and the world will be celebrating Sigmund Freud's 150th birthday on Saturday May 6, 2006. (AP Photo/Sigmund Freud Museum)
Ef þú vilt fá nánari upplýsingar um netráðgjöf, sendu þá póst á netradgjof@barnaland.is
http://barnaland.is |
Notkunarskilmálar
| API | Auglýsingar
© 2000-2010 barnaland.is
Öll réttindi áskilin. Um fyrirtækið | S1
http://barnaland.is
© 2000-2010 barnaland.is
Öll réttindi áskilin. | S1